Almannatengslafyrirtæki

Veldu það hlutverk í flæðiritinu sem þú vilt fræðast nánar um.
Almannatengslafyrirtæki (eða publicists) aðstoða listafólk, útgáfufyrirtæki og aðra í tónlistargeiranum við að kynna útgáfur, viðburði og feril þeirra almennt.

Þau vinna að því að byggja upp ímynd, tryggja fjölmiðlaumfjöllun og bæta sýnileika listafólks í gegnum fjölbreyttar leiðir.

Helstu verkefni almannatengslafyrirtækja eru meðal annars:
  • Að senda út fréttatilkynningar og tilkynningar um nýjar útgáfur
  • Að bóka viðtöl, sjónvarps- og útvarpsþætti
  • Að tryggja umfjöllun í prent- og netmiðlum
  • Að skipuleggja kynningarviðburði og fjölmiðlaheimsóknir
  • Að þróa kynningarstefnu til lengri og skemmri tíma

Hverjir ráða almannatengil?

Almannatenglar  vinna bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki í tónlistarbransanum.

Algengt er að:
  • Listafólk ráði sér publicist fyrir sérstakar útgáfur eða verkefni (t.d. nýtt lag, plötuútgáfu eða tónleikaferðalag)
  • Útgáfufyrirtæki vinni með PR-fyrirtækjum til að kynna sína listamenn
  • Tónlistarhátíðir, viðburðir og tónlistarverðlaun ráði almannatengslafyrirtæki til að stýra kynningarmálum

Greiðslufyrirkomulag

Þjónusta almannatengslafyrirtækja er yfirleitt keypt fyrir fast mánaðargjald eða gegn samningi sem tekur til ákveðins tímabils eða verkefnis.

Sumir publicists bjóða einnig upp á afmarkaða þjónustupakka fyrir einstök verkefni, t.d. útgáfukynningu á einni plötu. Það er mikilvægt að hafa í huga að publicists geta ekki ábyrgst fjölmiðlaumfjöllun – þeir auka líkurnar á umfjöllun með markvissri vinnu en geta ekki stjórnað ákvörðunum fjölmiðla.
Tákn Tónlistarmiðstöðvar