Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist samkvæmt Tónlistarlögum og reglum um Tónlistarsjóð.
Sjóðurinn skal stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þeirra hér á landi sem erlendis. Tónlistarsjóður heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og er í umsýslu Tónlistarmiðstöðvar.
Allar fyrirspurnir varðandi tónlistarsjóð →
Umsóknarfrestir fyrir alla styrki Tónlistarsjóðs, nema ferðastyrki, eru í apríl og nóvember.
Lokað er fyrir umsóknir í augnablikinu.
Ferðastyrkir eru veittir annan hvern
mánuð frá og með 1. júní 2024.
Umsóknarfrestir eru fyrir miðnætti aðfaranótt
1. febrúar, 1. apríl, 1. júní, 1. ágúst, 1. október, 1. nóvember (auka úthlutun) og 1. desember.
Upphæð verkefnastyrkja:
500.000 kr. - 3.000.000 kr.
Upphæð verkefnastyrkja:
250.000 kr. - 3.000.000 kr.
Upphæð langtímasamninga:
1.000.000 kr. - 6.000.000 kr. á ári.
Upphæð verkefnastyrkja:
500.000 kr. - 3.000.000 kr.
Upphæð langtímasamninga:
1.000.000 kr. - 6.000.000 kr. á ári.
Upphæð styrkja:
50.000 kr. innanlands
75.000 kr. innan Evrópu
100.000 kr. utan Evrópu
Upphæð verkefnastyrkja:
500.000 kr. - 2.000.000 kr.
Úthlutunarnefndir meta umsóknir út frá markmiðum og áherslum hverrar deildar og nýta staðlað matsblað út frá eftirfarandi þáttum:
Úthlutunarnefnd metur hvort verkefnið sé vel skilgreint, áhugavert, hvort það stuðli að fjölbreytni, sé faglega unnið og af metnaði.
Úthlutunarnefnd metur hve sannfærandi er að umsækjandi og þátttakendur nái settum markmiðum með tilliti til faglegs og listræns bakgrunns þeirra.
Úthlutunarnefnd metur hvort fjárhagsáætlun sé raunsæ og sýni fram á fjárþörf verkefnisins með skýrum hætti.
Úthlutunarnefnd metur hvort kynningar- og markaðsáætlun sé raunhæf og vel rökstudd, m.a. með tilliti til markhópa, markaðssvæða og fjármagns. Einnig þarf að vera skýrt hver ber ábyrgð á markaðs- og kynningarmálum.
Úthlutunarnefnd metur hvort verk- og tímaáætlun sé raunsæ, skýr og í samræmi við aðrar áætlanir.
Umsóknir verða ekki teknar til greina ef lokaskýrslur, eða áfangaskýrslur hafa ekki borist í umsóknarkerfið fyrir verkefni sem fengu styrk árið 2022 eða síðar. Það á við umsóknir úr „gamla“ Tónlistarsjóði og Hljóðritasjóði, en ekki Útflutningssjóði.
Aðilar sem sækja um flytjendastyrki og viðskiptastyrki geta sótt um langtímasamninga til tveggja eða þriggja ára.
Athugið að þótt sótt sé um langtímasamning miðast fjárhagsáætlun í umsóknarformi einungis við fyrsta árið. Ítarlegri fjárhagsáætlun fyrir allt tímabilið skal skilað sem viðhengi.
Verk- og tímaáætlun í umsóknarformi ætti hinsvegar að endurspegla tímalengd verkefnis sem sótt er um fyrir. Til að mynda ef sótt er um langtímasamning til tveggja ára þá ætti að fylla út verk- og tímaáætlun fyrir tveggja ára tímabil.
Ef úthlutunarnefnd ákveður að veita ekki langtímasamning er umsóknin tekin til greina fyrir stakan verkefnastyrk og ber úthlutunarnefnd þá að skýra fyrir umsækjanda hvað verið er að styrkja.
Athugið að ef sótt er um langtímastyrk er litið til eftirfarandi þátta eins og við á:
Við mat á umsóknum í deild útflutnings er litið til eftirfarandi þátta.
Mikilvægt er að verkefnið (hljómsveit, tónlistarhópur eða einstaklingur) sem sótt er um fyrir sé með vel skilgreinda ímynd og að það hafi skapað sér listrænt og faglegt orðspor í tónlist.
Undir því nafni sem sótt er um er æskilegt að til sé útgefin tónlist á helstu streymisveitum. Ef umsækjandi hefur ekki gefið út mikið af tónlist þarf að fylgja sannfærandi útgáfuáætlun með umsókn, ef við á.
Þegar sótt er um ferðastyrk vegna tónleikahalds er æskilegt að sýnt sé fram á reynslu af tónlistarflutningi.
Mikilvægt er að vera með sannfærandi markaðsáætlun með skýr útflutningsmarkmið. Litið er til umfjöllunar í erlendum miðlum, sýnileika á samfélagsmiðlum, vefsíðu og hlustunar á streymisveitum.
Litið er til samstarfs við fagaðila, svo sem umboðsmanna, bókara og kynningarfulltrúa/skrifstofa. Ef samstarf við fagaðila er ekki til staðar eru gerðar strangari kröfur á að tónlistarfólkið sjálft hafi skýra sýn á hver útflutningsmarkmið þess eru og hvernig þeim verður fylgt eftir.
Allar fyrirspurnir varðandi tónlistarsjóð →
Það er alltaf jákvætt að sýna fram á aðrar tekjur og/eða styrki sem fást fyrir verkefnið og það dregur ekki úr virði umsóknarinnar svo lengi sem sýnt er fram á sannanlega fjárþörf verkefnis.
Þegar sótt eru um langtímasamninga miðast fjárhagsáætlun í umsóknarformi einungis við fyrsta árið. Ítarlegri fjárhagsáætlun fyrir allt tímabilið skal skilað sem viðhengi.
Að öllu jöfnu þurfa verkefni að hefjast innan 18 mánaða eftir að úthlutun fer fram, sbr. 9. gr. í reglum Tónlistarsjóðs. Ef að spurningar vakna varðandi verkefnatímabil hvetjum við umsækjendur að hafa samband við Tónlistarmiðstöð.
Skýrslum (áfanga eða loka) er skilað í gegnum mínar síður Rannís. Ef við á birtist valkosturinn "skýrslur" á mínum síðum notanda sem ber ábyrgð á að skila skila skýrslum verkefnis. Hafið samband við Tónlistarmiðstöð ef skýrsla birtist ekki á mínum síðum.
Sótt er um Tónlistarstyrki, Flytjendastyrki, Viðskiptastyrki og Markaðsstyrki Tónlistarsjóðs í gegnum umsóknargátt Rannís. Sótt er um Ferðastyrki á vef Tónlistarmiðstöðvar.
Umsóknarfrestir fyrir Tónlistarstyrki, Flytjendastyrki, Viðskiptastyrki og Markaðsstyrki Tónlistarsjóðs eru maí og nóvember árlega og staðfestir umsóknarfrestir eru auglýstir á miðlum Tónlistarmiðstöðvar og Menningar- og viðskiptaráðuneytis. Umsóknarfrestur fyrir Ferðastyrk Tónlistarsjóðs er fyrir miðnætti aðfararnótt 1. febrúar, 1.apríl, 1.júní, 1.ágúst, 1.október og 1. desember.
Tónlistarmiðstöð notar umsóknar- og matskerfi Rannís við umsýslu Tónlistarsjóðs samkvæmt samningi milli Menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneytisins og Rannís.
Úthlutunarnefndir Tónlistarsjóðs eru skipaðir af Menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneyti. Úthlutunarnefndir eru fjórar, ein fyrir hverja deild Tónlistarsjóðs. Þrír aðilar sitja í hverri nefnd og þrír varamenn. Úthlutunarnefndir fara yfir og meta umsóknir samkvæmt Tónlistarlögum, reglum og áherslum Tónlistarsjóðs.
Tónlistarsjóður heyrir undir Menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneytið og er í umsýslu Tónlistarmiðstöðvar samkvæmt lögum frá maí 2023. Miðstöðin hefur umsjón með sjóðnum og er verkefnastjóri á vegum Tónlistarmiðstöðvar tengiliður við umsækjendur, Rannís, ráðuneyti og úthlutunarnefndir. Verkefnastjóri boðar úthlutunarnefndir á samráðsfundi til að fara yfir umsóknir og situr þá fundi sem hlutlaus aðili og fundarritari.