Bókarar

Bókarar starfa yfirleitt á bókunarskrifstofu og gegna lykilhlutverki í því að móta stefnu listafólks þegar kemur að lifandi flutningi — með öðrum orðum: hvernig, hvenær og hvar listafólk kemur fram.
Bókarar vinna mjög náið með umboðsfólki og öðrum lykilaðilum að því að samræma tónleikaframkomu við aðra þætti ferilsins.

Bókarar skipuleggja tónleika og tónleikaferðir í samræmi við lykil útgáfudagsetningar og aðrar lykilstöðvar á ferli skjólstæðinga sinna. Snemma á ferlinum geta bókarar skipt sköpum með því að koma listafólki á réttu faghátíðirnar og fyrir framan augu mögulegra samstarfsaðila. 

Formlegir samningar eru sjaldgæfir, en bókarar taka yfirleitt 10% þóknun af brúttótekjum þeirra tónleika sem þeir bóka.
Veldu það hlutverk í flæðiritinu sem þú vilt fræðast nánar um.
Tákn Tónlistarmiðstöðvar