Bransaveisla 2026!

22 October 2026

Dagana 3.–6. nóvember fer Bransaveisla fram í sjötta sinn. Bransaveislan er ókeypis fræðslu- og viðburðaröð sem Tónlistarmiðstöð og Tónlistarborgin Reykjavík halda með stuðningi Íslandsstofu. Tilgangur hennar er að tengja erlenda fagaðila, sem koma til landsins vegna Iceland Airwaves-hátíðarinnar, beint við íslenska tónlistarsamfélagið. Boðið verður upp á meistaranámskeið, vinnustofur, pallborðsumræður og margt fleira.

Meðal helstu viðburða í ár má nefna árlegt meistaranámskeið í umboðsmennsku, sem haldið er í samstarfi við MMF Iceland, og Spotify-masterclass með Emmu Vikström, yfirmanni ritstjórnar Spotify á Norðurlöndunum. Í Yes, No, Not Yet taka bókarar frá nokkrum af helstu hátíðum Evrópu ákvarðanir fyrir opnum tjöldum, og pallborðið Relocate. Reshape. skálar fyrir nýjum Íslendingum og mikilvægu framlagi þeirra til listasenu landsins.

Feedback, samstarfsverkefni Bransaveislu og The Reykjavík Grapevine, snýr einnig aftur eftir vel heppnaða frumraun í fyrra. Verkefninu er ætlað að hvetja til nýliðunar í menningarmiðlun og gefur það ungum og upprennandi tónlistarpennum tækifæri til að skrifa um Iceland Airwaves undir leiðsögn tónlistarblaðamanna í fremstu röð, bæði hérlendis og erlendis.

Fastir liðir verða jafnframt á dagskrá, eins og hinir sívinsælu tengslamyndunarfundir, þar sem tónlistarfólk getur bókað örfundi með stjörnum prýddum hópi fagfólks sem er kominn hingað til að kynnast og tengjast íslensku tónlistarlífi.

Aðgangur að öllum viðburðum Bransaveislu er ókeypis en skráning er nauðsynleg og pláss í sumum tilfellum takmarkað. Við hvetjum því áhugasöm eindregið til að kynna sér dagskrána sem fyrst og nýta sér þetta einstaka tækifæri til hins ýtrasta.


Dagskrá


Feedback – Nýliðun í menningarmiðlun

 

Vinnustofa mán. 2. nóv. kl. 17:00, The Reykjavík Grapevine, Hafnarstræti 8 · Umsóknarfrestur fim. 29. okt.

Feedback, samstarfsverkefni Bransaveislu og The Reykjavík Grapevine, snýr aftur eftir vel heppnaða frumraun í fyrra. Ungir og upprennandi tónlistarpennar fá hraðnámskeið í tónlistarblaðamennsku og skrifa svo um Iceland Airwaves fyrir Grapevine og hljóta leiðsögn tónlistarblaðamanna í fremstu röð. Engrar reynslu er krafist, aðeins góðrar enskukunnáttu og brennandi áhuga á lifandi tónlist.

Nánari upplýsingar og umsóknir hér >>

‍

Samtal um skapandi greinar: Að vita sínu viti

Þri. 3. nóv. kl. 08:30–10:00, Fenris Creations í Grósku og í streymi · Fer fram á ensku

Hvaða aðferðum beitum við í rannsóknum á vistkerfi tónlistar á Íslandi og hvernig nýtist sú þekking við stefnumótun, fjármögnun og ákvarðanatöku? Rannsóknasetur skapandi greina, Tónlistarmiðstöð og Tónlistarborgin Reykjavík, í samstarfi við Fenris Creations, bjóða til samtals við rannsakendur og ákvörðunaraðila – allt frá tölfræði til hönnunarhugsunar – og pallborðsumræðu með meðal annars Maríu Rut Reynisdóttur, framkvæmdastjóra Tónlistarmiðstöðvar, og Örnu Kristínu Einarsdóttur úr menningarráðuneytinu.

Nánari upplýsingar og skráning hér >>

Næturhagkerfið: What Happens After Dark, Stays in the Dark

 Þri. 3. nóv. kl. 12:00–13:30, Mengi

Stór hluti menningarlífs Reykjavíkur fer fram eftir myrkur, en fólkið sem heldur næturlífinu gangandi fær sjaldan sæti við borðið með stjórnvöldum. Í pallborðinu ræðir fólk úr næturhagkerfinu hvað virkar, hvað vantar og hvort Reykjavík þurfi sinn eigin hagsmunahóp næturlífsins, með innleggi frá .Haus og næturlífsnefnd Kaupmannahafnar.

Nánari upplýsingar og skráning hér >>

Spotify Masterclass: Connecting with Fans & Growing Your Audience

Þri. 3. nóv. kl. 15:30–17:00, Tónlistarmiðstöð · Fer fram á ensku

Emma Vikström, yfirmaður norrænnar ritstjórnar Spotify, fer yfir hvernig tónlistarfólk og teymin þeirra geta nýtt Spotify sem best: Spotify for Artists, nýjustu verkfærin, hvernig lagalistar virka og hvernig best er að kynna nýja tónlist fyrir ritstjórum Spotify.

Nánari upplýsingar og skráning hér >>

‍

Relocate. Reshape. – Nýir Íslendingar og örsenan

 

Þri. 3. nóv. kl. 17:00–19:00, Mengi · Fer fram á ensku

Nýir Íslendingar mæta lausir við þær tryggðir og óskrifuðu reglur sem halda lítilli senu lítilli og byggja upp það sem engum öðrum datt í hug. Á viðburðinum fögnum við því sem þeir hafa byggt upp, með einlægu, skemmtilegu og jafnvel örlítið óþægilegu spjalli, tónlistaratriðum, léttum veitingum og nafnlausum Játningakassa. Meðal þátttakenda eru John Grant, Jelena Ćirić og Andervel.

Nánari upplýsingar og skráning hér >>

‍

Meistaranámskeið í umboðsmennsku með Sumit Bothra

Mið. 4. nóv. kl. 14:00–15:30, Tónlistarmiðstöð · Fer fram á ensku

Að venju býður Bransaveislan upp á meistaranámskeið í umboðsmennsku í samstarfi við MMF Iceland. Gestur ársins er Sumit Bothra, stofnandi SB3 Artist Management og fyrrverandi framkvæmdastjóri ATC Management, sem hefur verið umboðsmaður listafólks á borð við PJ Harvey, The Staves og Lola Young. Sætaframboð er takmarkað.

Nánari upplýsingar og skráning hér >>

‍

Já, nei, ekki strax – Á bak við tjöldin hjá bókurum tónlistarhátíða

Mið. 4. nóv. kl. 15:30–17:00, Tónlistarmiðstöð  · Fer fram á ensku

Bókarar frá nokkrum af helstu hátíðum Evrópu fá í hendurnar ímyndaðar umsóknir frá íslensku tónlistarfólki og þurfa að taka ákvörðun: já, nei eða ekki strax. Svo breytum við forsendunum og sjáum hvort það hafi áhrif á niðurstöðuna. Ef þú hefur einhvern tímann velt fyrir þér hvað verður um umsóknina þína, þá er þetta svarið.

Nánari upplýsingar og skráning hér >>

‍

Tengslamyndunarfundir

 

Mið. 4. nóv. kl. 17:30–19:30, Bingó · Umsóknarfrestur 2. nóv  · Fer fram á ensku

Bókaðu 15 mínútna fund með alþjóðlegum gestum úr öllum kimum tónlistarbransans. Bókurum, útgefendum og umboðsfólki frá Reeperbahn Festival, The Great Escape, KEXP, Dischord Records og fleiri.

Nánari upplýsingar og skráning hér >>

‍

Happy Hour á Bingó

 Mið. 4. nóv. kl. 19:30–20:30, Bingó

Að loknum tengslamyndunarfundum bjóða Bransaveislan og MMF Iceland öllum að skála fyrir veislunni, hefja Airwaves-gleðina fyrir alvöru og heyra af spennandi samstarfsverkefni Tónlistarmiðstöðvar og MMF Iceland á næsta ári.

Nánari upplýsingar hér >>

‍

Who Needs a Publisher? – Með Steven Tallamy og Bigga Hilmars

Fös. 6. nóv. kl. 17:00–18:30, INNI Music · Umsóknarfrestur 3. nóv. · Fer fram á ensku

Reynsluboltinn Steven Tallamy frá Wise Music og tónskáldið Biggi Hilmars fara yfir allt sem viðkemur forlagsbransanum: kosti og galla, hvenær og hvernig best er að nálgast forleggjara og hvort þú þurfir yfirhöfuð á einum að halda. Sætaframboð er takmarkað.

Nánari upplýsingar og umsóknir hér >>

‍

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar