
Hvar: INNI Music, Bergþórugata 55, 101 Reykjavík
Hvenær: Föstudaginn 6. nóvember kl. 17:00–18:30
Haldið í samstarfi við MPA Iceland
Viðburðurinn fer fram á ensku
////////////////////////////////////
„Hvað getur forleggjari gert fyrir mig?” Spurningin ómar frá röðum lagahöfunda á hverri einustu tónlistarráðstefnu og hátíð. En áður en hægt er að svara henni þarf lagahöfundurinn fyrst að gera upp við sig hver metnaðurinn er.
Sumir forleggjarar eru litlir og staðbundnir og í nánu sambandi við höfunda sína. Aðrir eru alþjóðleg fyrirtæki sem semja oft við höfunda á svæðum þar sem þau eru ekki með skrifstofu, og svo eru sérhæfðir forleggjarar sem einbeita sér að ákveðnum tónlistarstefnum. Sumir höfundar vilja aðstoð við lagasmíðabúðir, samstarf og tengsl við upprennandi upptökustjóra. Aðrir vilja færa sig yfir í nýklassísk verk eða einbeita sér að tónlist í myndmiðlum og kvikmyndatónlist.
Á viðburðinum fara reynsluboltinn Steven Tallamy frá Wise Music og tónskáldið Biggi Hilmars yfir allt sem viðkemur forlagsbransanum: kosti hans og galla, og hvenær og hvernig best sé að nálgast forleggjara, ef þú þarft á annað borð á slíkum að halda.
Umsóknarfrestur til 3. nóv
Takmarkað sætaframboð

Steven Tallamy has worked in the music industry for over 40 years, holding international roles at major labels including Marketing Director at Universal Music UK and Strategic Marketing Director at Sony Music Nordics. In 2014 he moved into publishing with Edition Wilhelm Hansen/Wise Music in Copenhagen, where he built a music supervision department that has worked on over 30 feature films, plus documentaries, TV dramas and advertising. In 2022 he opened Wise Music Iceland in Reykjavík. He is now Chief Operating Officer for the Nordic and Baltic regions, leading A&R, sync and music supervision, and was recently music supervisor on the award-winning Danish feature Kvinde, ukendt.