Tækifæri framundan: Classical:NEXT, Leiðir, SPOT, Tallinn Music Week og The Great Escape

28 September 2026

Nú á haustmánuðum fer aftur að bera á allskonar tækifærum fyrir tónlistarfólk. Hér eru þessir helstu umsóknarfrestir sem hafa ber í huga þessa stundina. 

Við mælum auðvitað með því að fólk skrái sig á fréttabréf Tónlistarmiðstöðvar til að fá svona tækifæri beint í pósthólfið. Eins hvetjum við viðburðahaldara og aðra til að senda okkur línu á hello@icelandmusic.is ef óskað er eftir aðstoð okkar við að vekja athygli á skemmtilegum tækifærum! 

Leiðir

LEIÐIR er námskeið sem er haldið af INNI Music og er ætlað upprennandi tónskáldum og upptökustjórum (e. music producers) á Íslandi, með það að markmiði að efla og styðja raddir sem hafa fengið takmarkað svigrúm í tónlistarheiminum.

Námskeiðið verður haldið frá október 2026 til febrúar 2027 og felur í sér fjórar vinnusmiðjur, reglulega tíma með leiðbeinendum, samvinnuverkefni, stöðumat í miðju tímabilsins og lokaviðburð í vor þar sem afraksturinn verður sýndur.

LEIÐIR gefur þátttakendum tækifæri til að læra beint af fagfólki sem starfar á hæsta stigi tónlistariðnaðarins. Viðburðirnir verða haldnir hjá INNI í Reykjavík.

Umsóknir þurfa að skilast fyrir 2. okt.

Nánari upplýsingar má nálgast hér >>>

Classical:Next

Tónlistarhátíðin og ráðstefnan Classical:NEXT 2027 hefur opnað fyrir umsóknir um þátttöku á hátíðinni sem fer fram dagana 11.- 14. maí í Katowice, Póllandi

Classical:NEXT er ein af mikilvægustu alþjóðlegu samkomum þeirra sem starfa á sviði sígildrar- og samtímatónlistar og býður hátíðin upp á einstakan vettvang fyrir tónlistarfólk frá öllum heimshornum til að kynna sig og sín verkefni og tengjast fagaðilum innan geirans.

Hægt er að sækja um í fjórum flokkum: 

  • Showcase tónleikar – Einleikarar og minni hljómsveitir geta sótt um að kynna ný verk með tónleikum á hátíðinni.
  • Klúbbatónleikar - Plötusnúðar, einleikarar og minni hljómsveitir geta sótt um að vera hluti af klúbbadagskránni sem fer fram á kvöldin og opnar dyrnar fyrir fjölbreyttari tónlistarstefnum. 
  • Ráðstefnuerindi - Á ráðstefnunni er leitað að erindum sem miðla nýrri sýn og hagnýtri þekkingu á sviði sígildrar og samtímatónlistar.
  • Verkefnakynningar - Stærri verkefni, stórar hljómsveitir og sviðslistaverkefni geta sótt um að halda kynningu á verkefninu sínu. Hvert verkefni fær 9 mínútur til að kynna verkefnið sitt með myndbandi og svara spurningum.

Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en föstudaginn 9. okt. Frekari upplýsingar fást á vefsíðu hátíðarinnar: https://classicalnext.org/

‍

Tallinn Music Week

Faghátíðin Tallinn Music Week fer fram 8.- 11. apríl 2027 en frestur til að sækja um að koma fram á hátíðinni er til 26. október.

Tallinn Music Week (TMW) kallar sig „hátíð tónlistar, listar og hugmynda morgundagsins” og og er lykilviðburður fyrir fagfólk í evrópska tónlistar- og menningariðnaðinum. Hátíðin hefur verið haldin árlega í höfuðborg Eistlands, Tallinn, síðan 2009. 

Sækið um hér

‍

SPOT Festival

SPOT er ein stærsta og elsta faghátíð Skandinavíu og er haldin í Árósum á hverju ári. Næsta hátíð fer fram dagana 7. og 8. maí 2027 og opnar fyrir umsóknir þann 1. október.

Hátíðin leggur lykiláherslu á uppgötvun. Hún bókar helst ungt og upprennandi tónlistarfólk og býr þannig til vettvang fyrir raddirnar sem koma til með að móta tónlist framtíðarinnar. 

Sækið um hér

‍

The Great Escape

The Great Escape auglýsir eftir umsóknum frá listafólki sem hefur áhuga á að koma fram á hátíðinni á næsta ári, sem fer fram dagana 12.-15. maí. TGE er árleg faghátíð í strandborginni Brighton í Bretlandi og er hún sú stærsta sinnar tegundar þar í landi.

Umsóknarfrestur til 15. Febrúar 2027

Sækið um hér

‍

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar