
Hefuru þörf á því að setja tónlistarupplifanir þínar í orð og birta fyrir alþjóð? Ef svo, þá er Feedback fyrir þig:
Eftir vel heppnaða frumraun á Iceland Airwaves í fyrra, þar sem nokkrir þátttakendur fundu sér nýjan starfsvettvang í tónlistarblaðamennsku, snýr Feedback aftur í annað sinn. Verkefnið er á vegum Bransaveislu og The Reykjavík Grapevine í samstarfi við Iceland Airwaves og býður ungum og metnaðarfullum pennum upp á hraðnámskeið í tónlistarblaðamennsku.
Feedback hefst með vinnustofu í tónlistarblaðamennsku á nýrri skrifstofu Grapevine í Hafnarstræti 8, mánudaginn 2. nóvember kl. 17:00. Þátttakendur skrifa svo um Iceland Airwaves (5.–7. nóvember) fyrir The Reykjavík Grapevine ásamt föstum pennum blaðsins og hafa aðgang að skrifstofu og ritstjórn blaðsins á meðan á hátíðinni stendur. Þeim er einnig boðið á viðburði þar sem þeir fá tækifæri til að hitta og læra af alþjóðlegum blaðamönnum sem sækja hátíðina.
Valdir þátttakendur fá blaðamannapassa á hátíðina, þóknun fyrir skrif sín og umfjöllun sína birta á vef The Reykjavík Grapevine. Þau fá einnig leiðsögn frá ritstjórum Grapevine og erlendum tónlistarblaðamönnum alla hátíðina, svo þau geti mótað sína eigin rödd og fengið einstaka innsýn í heim tónlistarblaðamennskunnar.
Hverjir geta sótt um?
Við leitum að forvitnum, opinskáum og áhugasömum einstaklingum með góða enskukunnáttu og brennandi áhuga á lifandi tónlist. Ekki er gerð krafa um fyrri reynslu af blaðamennsku, eingöngu frumkvæði og ferskt sjónarhorn.
Við biðjum umsækjendur um að láta stuttan texta fylgja umsókninni, t.d. hugleiðingu um tónleika, stutta grein eða skoðanapistil. Mælt er með einhverju sem endurspeglar stíl og tón umsækjanda. Það þarf vart að taka það fram að við tökum ekki við texta sem er skrifaður af gervigreind.
Feedback er einstakt tækifæri til að læra af þeim bestu, fá skrif þín birt í leiðandi menningartímariti og smá vasapening fyrir vesenið!
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 29. október.