Samtal um skapandi greinar: Að vita sínu viti – Rannsóknir og hagnýting þekkingar á vistkerfi tónlistar á Íslandi

No items found.

Hvar: Fenris Creations, 3. hæð í Grósku, Kristínargötu 1, 102 Reykjavík, og í streymi á Facebook
Hvenær: Þriðjudaginn 3. nóvember kl. 08:30–10:00
Viðburðurinn fer fram á ensku
////////////////////////////////////

Hvaða aðferðum beitum við í rannsóknum á vistkerfi tónlistar á Íslandi og hvernig hagnýtum við þá þekkingu? Hvað segja ólíkar rannsóknir okkur um stöðu tónlistargeirans og hvernig nýtist sú þekking við stefnumótun, fjármögnun og ákvarðanatöku?

Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG), Tónlistarmiðstöð og Tónlistarborgin Reykjavík, í samstarfi við Fenris Creations, bjóða til opins samtals um rannsóknir, þekkingarsköpun og hlutverk þekkingar í að móta framtíð íslensks tónlistarlífs. Rannsakendur segja frá því hvernig þekking á tónlistargeiranum verður til, allt frá tölfræði til hönnunarhugsunar og rýnihópa, og að kynningunum loknum tekur við pallborðsumræða um hvernig niðurstöðurnar geta nýst við stefnumótun og ákvarðanatöku.

Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar í Grósku.

Skráning fer fram hér

Kynningar

Erla Rún Guðmundsdóttir – forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina (RSSG)
Erla Rún kynnir tölfræðigreiningar RSSG á íslenskum tónlistariðnaði og ræðir tækifæri og takmörk tölfræðinnar. Hún starfaði áður sem sérfræðingur í menningartölfræði hjá Hagstofu Íslands og er doktorsnemi við viðskiptafræðideild HÍ, þar sem rannsóknir hennar snúa að vinnumarkaði, mælingum og stefnumótun í skapandi greinum.

R. Michael Hendrix – stofnandi Huldunóta
Michael segir frá rannsóknum sínum, byggðum á hönnunarhugsun, á lifandi tónlist og menningarlegum innviðum í miðborg Reykjavíkur. Hann er hönnuður, kennari, höfundur og tónlistarmaður búsettur í Reykjavík og gegndi áður stöðu alþjóðlegs hönnunarstjóra hjá IDEO.

Þorbjörg Daphne Hall – prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands
Þorbjörg kynnir helstu niðurstöður rýnihóparannsóknar á stöðu íslenskrar tónlistar. Rannsóknir hennar snúa að íslenskri dægurtónlist og djassi og hún ritstýrði bókinni Sounds Icelandic (Equinox, 2017) ásamt fleirum.

Í pallborði

Arna Kristín Einarsdóttir – skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu
Arna Kristín hefur víðtæka reynslu af tónlist, listrænni stjórnun og menningarstefnumótun. Hún hefur gegnt stjórnunarstöðum hjá sinfóníuhljómsveitum í þremur löndum, meðal annars sem framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og National Arts Centre Orchestra í Ottawa.

María Rut Reynisdóttir – framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar
María Rut býr yfir meira en 20 ára reynslu úr menningargeiranum. Hún hefur meðal annars verið umboðsmaður Ásgeirs, stjórnað Íslensku tónlistarverðlaununum, gegnt lykilhlutverki í stofnun Tónlistarborgarinnar Reykjavík og stýrt skrifstofu menningarmála hjá borginni.

Þorvaldur Davíð Kristjánsson – 1. varaborgarfulltrúi Viðreisnar
Þorvaldur er varaformaður menningarráðs Reykjavíkur og tók nýverið við formennsku Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Hann lærði leiklist við The Juilliard School og hefur starfað sem leikari, framleiðandi og höfundur, auk þess að hafa leitt samvinnu- og samskiptasvið Eystrasaltsráðsins í Stokkhólmi.

Samtal um skapandi greinar er viðburðaröð á vegum Rannsóknaseturs skapandi greina í samstarfi við Fenris Creations, sem skapar vettvang fyrir umræðu og þekkingarmiðlun um menningu og skapandi greinar.

‍

Dagsetningar
Dagsetning
3 November 2026
 –
Staðsetning
Fenris Creations, 3. hæð í Grósku, Kristínargötu 1, 102 Reykjavík
Vefsíða
Aðrir viðburðir
Allir viðburðir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar