Næturhagkerfið: What Happens After the Dark, Stays in the Dark

No items found.

Næturhagkerfið: What Happens After Dark, Stays in the Dark
Í samstarfi við .Haus

Hvar: Mengi, Óðinsgötu 2, 101 Reykjavík
Hvenær: Þriðjudaginn 3. nóvember kl. 12:00–13:30

Stór hluti menningar- og félagslífs Reykjavíkur fer fram á nóttunni: tónlist, tónleikastaðir, veitingastaðir, klúbbar, viðburðir, skapandi starf og fleira. Þó hefur fólkið sem stendur vaktina í amstri næturinnar fá tækifæri til að tengjast hvert öðru eða til að koma reynslu sinni á framfæri í samtali við stjórnvöld og borgaryfirvöld.

Í pallborðinu kemur saman lítill hópur fólks úr næturhagkerfinu og deilir reynslu sinni af því að starfa eftir myrkur: hvað virkar, hvað er erfitt og hvað vantar í næturvistkerfi Reykjavíkur. Hefðbundið næturhagkerfi á undir högg að sækja og því vakna spurningar um hvernig við getum fundið nýjar leiðir til að tjá okkur og hittast og hvernig samstaða getur knúið fram nýjar birtingarmyndir næturlífsins. 

Í stað þess að kynna tilbúna lausn er spurt: Þarf Reykjavík vettvang til að brúa þetta bil? Og hvernig gæti staðbundinn hagsmunahópur næturlífsins litið út?

Markmiðið er að hefja samtal og jafnvel leiða saman fólkið sem gæti byggt eitthvað upp saman.

Boðið verður upp á veitingar.

Skráning >>>

‍

Dagskrá

Af hverju skiptir nóttin máli? (10 mín.)
René Boonekamp, .Haus
René tekur dæmi um hagsmunagæslu næturlífsins víða í Evrópu, og kynnir Evrópuverkefnin Night Time Boost og Nordic Night Network, sem miða að því að efla tengsl milli grasrótarsamfélaga næturlífsins og ákvörðunaraðila á Norðurlöndum.

Næturlífsnefnd Kaupmannahafnar (10 mín., á netinu)
Stutt kynning á því hvernig Kaupmannahöfn hefur hagað þessum málum.

Pallborð: Staða næturinnar í Reykjavík (45 mín.)
Hver er staða næturhagkerfisins í Reykjavík og hvernig getum við í sameiningu brúað bilið milli grasrótarstarfs og stefnumótunar?

Í pallborði sitja:

  • Arnfríður Valdimarsdóttir, Reykjavíkurborg
  • Steinþór Helgi Arnsteinsson, Röntgen, Skreið og Austurbæjarbíó
  • Bjarni Daníel Þorvaldsson, tónlistarmaður og skipuleggjandi
  • Erla Rún Guðmundsdóttir, rannsakandi

Umræðum stjórnar Atli Bollason

‍

Dagsetningar
Dagsetning
3 November 2026
 –
Staðsetning
Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavík
Vefsíða
Aðrir viðburðir
Allir viðburðir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar