Reykjavík Folk Festival snýr aftur annað árið í röð!

27 February 2026

Reykjavík Folk Festival fer fram, annað árið í röð, dagana 19.-21. mars 2026 næstkomandi. 

Fyrsta útgáfa hátíðarinnar fór fram árið 2010 og var forsvarsmaður, hugmyndasmiður og fyrsti framkvæmdastjóri hennar Ólafur Þórðarson, ástsæll tónlistarmaður í Ríó Tríó og fleiri hljómsveitum. 

Þó að folk tónlist þýðist oftast sem þjóðlagatónlist þykir hátíðarhöldurum réttara að kalla hana alþýðutónlist. Það er sökum þess að hún er oft skilgreind sem tónlist sem rekur uppruna sinn til hins venjulega alþýðumanns. Arfur sem borist hefur mann frá manni, kynslóð eftir kynslóð og má oftar en ekki rekja til þess að vinir eða fjölskyldan hafa komið saman, sungið og spilað af fingrum fram. Hátíðin upphefur þennan alþýðuanda, gefur órafmögnuðum hljóðfærum aðalhlutverkin og setur spilagleðina í forgrunn. 

Aðaldagskrá Reykjavík Folk Festival fer fram í Iðnó dagana 20. og 21. mars en hátíðin verður sett í Tónlistarmiðstöð fimmtudaginn 19. Mars klukkan 17.00. 

Hér má finna nánari upplýsingar og miða á hátíðina

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar