Óður til íslenskrar alþýðutónlistar - Snorri Helgason tekur yfir Iceland Music Acoustic

03 March 2026

Í tilefni af Reykjavik Folk Festival, sem fer fram dagana 20.-21. mars, buðum við Snorra Helgasyni að taka við taumunum á Iceland Music Acoustic lagalistanum. 

Snorri kemur fram á hátíðinni á tónleikum sem bera yfirskriftina “Óður til íslenskrar alþýðutónlistar”.  Þar mun hann, ásamt þjóðlagasveitunum BREK og Umbru og alþýðupopparanum Svavari Knúti, flytja rjómann af íslenskri alþýðutónlist í gegnum árin.

Lagalisti Snorra er í anda tónleikanna og endurspeglar ríkulegan alþýðutónlistararf þjóðarinnar, ásamt því að gefa góða innsýn inn í það nýjasta og besta sem geirinn hefur uppá að bjóða. 

Það er hreinlega ekki til mikið betri kvöldverðarfélagi en þessi lagalisti:

Auk þess að taka þátt í Reykjavík Folk Festival er Snorri að undirbúa tónleika í Salnum í Kópavogi. Tónleikarnir, sem verða þann 26.mars, eru hluti af Af fingrum fram tónleikaröð Jóns Ólafs og mun hann koma þar fram ásamt eiginkonu sinni Sögu Garðarsdóttur.

Þess fyrir utan stefnir Snorri á upptökur á nýrri plötu  þar sem hann flytur órafmagnaðar útgáfur af lögum annarra höfunda. Að hans sögn er planið að “Bon Iver-a þetta”, koma sér fyrir upp í bústað í þykkri flannelskyrtu með beanie-húfu og taka þetta allt upp sjálfur.  

Að lokum er von á stuttmynd í haust sem byggð er á þremur lögum af nýlegri Borgartúns-plötu Snorra. Snæfríð Sól Gunnarsdóttir leikstýrir eftir handriti Magnúsar Leifssonar, en tökur hefjast í lok mars. 

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar