Ár frá formlegri opnun Tónlistarmiðstöðvar - Myndir
25
.
April
2025
Í tilefni þess að ár er liðið frá formlegri opnun Tónlistarmiðstöðvar lítum við aðeins yfir farinn veg, gröfum í myndasafninu og birtum hér nokkrar myndir af því helsta sem hefur átt sér stað hér innanhúss undanfarið árið.
Tónlistarmiðstöð hefur hýst tugi viðburða á undanförnu ári – en allir eiga þeir það sameiginlegt að snúast um að efla og virkja íslenskt tónlistarlíf. Hér hafa verið haldnir tónleikar og pallborðsumræður, samsöngvar og ráðherrahittingar, námskeiðaraðir og gleðistundir – og margvíslegt annað.
Við erum þakklát og stolt yfir því að hafa á svona stuttum tíma náð að skapa traustan og aðgengilegan heimavöll fyrir alla sem starfa að tónlist á Íslandi – og hvetjum jafnframt tónlistarfólk, umboðsmenn, skipuleggjendur og öll önnur sem starfa við tónlist á einn eða annan hátt til að nýta sér aðstöðuna sem við bjóðum upp á.
Finnur Karlsson (verkefnastjóri tónverkasafns) og Sigtyggur Baldursson (útflutningsráðgjafi) stýra samsöng
Hópurinn tekur undir með Finni og Sigtryggi
Leifur Björnsson (teymisstjóri útflutnings) og tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson stilla sér upp fyrir ljósmyndara
Meðlimir Supersport ásamt umboðsmanni sínum Margréti Ósk
Firestarter vinnusmiðjan hefur verið haldin tvisvar á síðastliðnu ári í samstarfi við Iceland Innovation Week
Tamsin Embleton ræðir bók sína Touring and Mental Health á fræðsluviðburði sem við héldum í samstarfi við MMF Ísland
Grímur Atlason, Nanna Bryndís og Árni Þór Árnason tóku þátt í samtalinu við Tamsin
Júnía Lín ræðir stjörnum prýddan ferilinn við Helenu Sif Gunnarsdóttur, markaðs- og kynningarráðgjafa Tónlistarmiðstöðvar
James Sandom og Al Mills frá Red Light UK glaðbeitt á meistaranámskeiði sem Tónlistarmiðstöð hýsti í samstarfi við MMF Ísland
Megnið af umboðsfólki Íslands samankomið á meistaranámskeiðinu
Júnía Lín segir bransasögur
Iðunn Einarsdóttir og Þórður Hallgrímsson kynna verkefni sitt Pípumessu fyrir fjölmiðlum og listrænum stjórnendum á Podium, sem Tónlistarmiðstöð hélt í tengslum við Myrka músíkdaga
Þórður stýrir pípukórnum af mikilli innlifun
Masaya Ozaki kynnir verk sitt Echoes from the Lighthouse á Podium
Lilja Alfreðsdóttir, fyrrverandi menningar- og viðskiptaráðherra ávarpar gesti við opnun Tónlistarmiðstöðvar fyrir ári síðan
Glaðbeittur hópur gesta á úthlutun Tónlistarsjóðs
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Logi Einarsson óskar Valgeiri Skorra úr hljómsveitinni Celebs til hamingju með tónlistarstyrk
Tónlistarmennirnir Sævar Andri Sigurðarson og Andrés Þór Þorvarðarson lyfta sér upp
Tónlistarkonan Harpa Þorvaldsdóttir á gleðistundu
Mikael Máni spilar fyrir gesti í sal Tónlistarmiðstöðvar
Einar Bárðason, stjórnarformaður Tónlistarmiðstöðvar, María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra stilla sér upp fyrir ljósmyndara
Ólöf Arnalds, Ísleifur Þórhallsson og Gunnhildur Einarsdóttir stilla sér upp í tilefni úthlutunar úr Tónlistarsjóði
Högni Egilsson í góðra vina hópi
Kórinn Kliður syngur fyrir gesti
Andervel spilar nokkur lög á opnuninni fyrir ári síðan
Hermigervil er sjaldan langt undan þegar það á að fagna
Bragi Valdimar og Guðrún Björk frá STEF afhentu Tónlistarmiðstöð þetta fallega verk eftir Baldvin Hlynsson. María Rut tók við fyrir hönd miðstöðvarinnar og Jakob Frímann formaður Tónlistarráðs slóst glaðbeittur í hópinn