Uppfærðar úthlutunarreglur á ferðastyrkjum Tónlistarsjóðs: Næsti frestur 1. apríl

23 March 2026

Það er hlutverk ferðastyrkja Tónlistarsjóðs að aðstoða íslenska tónlistargeirann við að sækja tækifæri á alþjóðlegum mörkuðum. Til að sinna því hlutverki betur höfum við uppfært og skýrt úthlutunarreglur ferðastyrkja Tónlistarsjóðs með það að markmiði að gera kerfið aðgengilegra og meira í takt við fjölbreyttar þarfir tónlistarsamfélagsins. 

Hvað er nýtt? 

Við höfum lagt áherslu á að fjarlægja hindranir. Helstu breytingar eru:

  • Rýmri umsóknarfrestir. Ferðastyrkir eru veittir á tveggja mánaða fresti og eru umsóknarfrestir núna til og með 1. feb, 1. apríl, 1. júní, 1. ágúst, 1. okt  og 1. des. 
  • „Export ready“ heyrir sögunni til. Ekki er lengur ætlast til þess að verkefni uppfylli fyrirfram skilgreindar kröfur um að vera tilbúin til útflutnings heldur metur nefndin hverja umsókn á hennar forsendum.
  • Ekkert lágmark á tónleikafjölda. Áður fyrr var gert ráð fyrir að hver ferð sem sótt væri um innihéldi að minnsta kosti þrenna tónleika, nema ef um faghátíð væri að ræða.
  • Engin takmörk á fjölda úthlutuna. Áður fyrr var miðað við að hvert verkefni gæti í mesta lagi hlotið ferðastyrk þrisvar á ári.

Næsti umsóknarfrestur er handan við hornið, eða 1. apríl.

Um styrkina

Ferðastyrkir eru veittir tónlistarfólki, tónskáldum og fagaðilum til að sækja fram á erlendri grundu, hvort sem um er að ræða tónleikaferðalög, þátttöku í faghátíðum (showcase) eða frumflutning tónverka.

Styrkupphæðir:

  • Innan Evrópu: 75.000 kr. á mann 
  • Utan Evrópu: 100.000 kr. á mann 

Athugið að ekki er veittur styrkur vegna hljóðritana erlendis.

Mat á umsóknum

Úthlutunarnefnd ferðastyrkja metur umsóknir út frá markmiðum deildarinnar og almennum matsviðmiðum Tónlistarsjóðs: 

  • 40% – Verkefnið - Er verkefnið sé vel skilgreint, áhugavert, unnið faglega og af metnaði?
  • 20% – Umsækjandi og þátttakendur - Hve sannfærandi er að umsækjandi og þátttakendur nái settum markmiðum með tilliti til faglegs og listræns bakgrunns?
  • 40% – Fjárhagsáætlun - Er fjárhagsáætlun raunsæ og sýnir hún fram á fjárþörf verkefnisins með skýrum hætti? 

Hlekkur á umsóknareyðublað hér

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar