Ferðastyrkir eru veittir á tveggja mánaða fresti. Umsóknarfrestir eru til og með; 1. febrúar, 1.apríl, 1.júní, 1.ágúst, 1.október og 1.desember.
Hægt er að sækja um ferðastyrki vegna m.a. tónleika og tónleikaferða, þátttöku í sendinefndum, fagtónlistarhátíða og frumflutnings á tónverkum eftir tónskáld.
Ekki er gerð krafa um að umsækjendur komi fram á ákveðnum lágmarksfjölda tónleika, úthlutunarnefnd metur gildi og umfang hvers verkefnis í heild sinni og í samhengi við markmið sjóðsins.
Ekkert hámark er á fjölda ferðastyrkja sem umsækjendur geta fengið úthlutað yfir árstímabil.
Ekki er hægt að sækja um fyrir verkefni sem hafa átt sér stað og eins er ekki hægt að sækja um ferðastyrki vegna hljóðritunar erlendis.
Mat á umsóknum
Úthlutunarnefnd ferðastyrkja metur umsóknir út frá markmiðum deildarinnar og almennum matsviðmiðum Tónlistarsjóðs:
40% – Verkefnið
Úthlutunarnefnd metur hvort verkefnið sé vel skilgreint, áhugavert, unnið faglega og af metnaði.
20% – Umsækjandi og þátttakendur
Úthlutunarnefnd metur hve sannfærandi er að umsækjandi og þátttakendur nái settum markmiðum með tilliti til faglegs og listræns bakgrunns.
40% – Fjárhagsáætlun
Úthlutunarnefnd metur hvort fjárhagsáætlun sé raunsæ og sýni fram á fjárþörf verkefnisins með skýrum hætti.