Tónlistarsjóður – Næsti umsóknarfrestur fyrir ferðastyrki rennur út 1. október
9
.
September
2024
Ferðastyrkir eru veittir til tónlistarfólks og fagaðila sem vilja sækja sér tækifæri á stærri markaði, t.d. með tónleikaferðalögum, þátttöku í sendinefndum, sölusýningum og fagtónlistarhátíðum (e. showcase).
Einnig eru veittir styrkir til tónskálda vegna frumflutnings á tónverkum. Styrkir eru veittir til verkefna sem eru tilbúin til útflutnings (e. export ready**).
Ferðastyrkir:
– 75 þúsund kr. á einstakling innan Evrópu
– 100 þúsund kr. á einstakling utan Evrópu
Styrkir eru ekki veittir aftur í tímann en umsókn sem berst áður en ferðalag hefst verður tekin til umfjöllunar. Umsókn skal berast FYRIR 1. hvers mánaðar.
Frá og með 1. júní 2024 eru ferðastyrkir veittir á tveggja mánaða fresti.
Viðmið úthlutunarnefndar
Við mat á umsóknum um ferðastyrk er litið til eftirfarandi atriða:
- Er tónlistarmaðurinn/hópurinn tilbúinn fyrir útflutning (e. ‘export ready’)?
- Mikilvægi tónleikanna/viðburðarins fyrir útflutning tónlistarinnar.
- Takið fram ef um ‘showcase’ tónlistarhátíð er að ræða
- Fjöldi tónleika á tónleikaferðalagi.
- Er um frumflutning að ræða (fyrir tónskáld)?
- Fjárhagsáætlun sem sýnir fram á sannarlega fjárþörf.
- Hér má finna góð ráð um hvernig á að setja upp góða fjárhagsáætlun ásamt sniðmáti sem við hvetjum umsækjendur til að nýta sér
Umsóknarfrestur fyrir ferðastyrki rennur út 1. október.