Tónlistarmiðstöð auglýsir eftir umsóknum vegna seinni úthlutunar Tónlistarsjóðs árið 2026

04 March 2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Tónlistarsjóð vegna seinni úthlutunar sjóðsins árið 2026. Umsóknarfrestur er til 15. apríl kl. 15:00.

Samkvæmt tónlistarlögum og reglum um Tónlistarsjóð er hlutverk sjóðsins að efla íslenska tónlist, hljóðritagerð og þróunarstarf í íslenskum tónlistariðnaði. Sjóðurinn skal stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun hér á landi og erlendis.

Tónlistarsjóður veitir fimm styrki úr fjórum deildum:

  • Tónlistarstyrkir – veittir úr deild frumsköpunar og útgáfu. Styrkur til að semja tónlist, taka hana upp, gefa út og kynna.
  • Flytjendastyrkir – veittir úr deild lifandi flutnings. Styrkur til tónleikahalds og tónleikaferða innanlands. Styrkirnir eru veittir beint til tónlistarfólks eða umbjóðenda þess. Langtímastyrkir eru í boði.
  • Viðskiptastyrkir – veittir úr deild þróunar og innviða. Styrkur vegna tónlistarverkefna svo sem tónlistarhátíða, tónleika­staða, tónleikaraða, viðskiptahugmynda í tónlist og sprotaverkefna. Langtímastyrkir eru í boði.
  • Markaðsstyrkir – veittir úr deild útflutnings. Styrkur til að vekja athygli erlendis.
  • Ferðastyrkir – veittir úr deild útflutnings. Sótt er um á vef Tónlistarmiðstöðvar á tveggja mánaða fresti. Styrkur vegna ferðalaga til að sækja sér tækifæri erlendis.

Styrkir úr Tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að öllu jöfnu þurfa verkefni að hefjast innan 18 mánaða eftir að úthlutun fer fram. Almennt eru ekki veittir styrkir til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana, sem hljóta regluleg rekstrarframlög, né til verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað

Umsóknir verða ekki teknar til greina ef lokaskýrslur, eða áfangaskýrslur, fyrir verkefni sem fengu styrk árið 2022 eða síðar hafa ekki borist í umsóknarkerfið. Þetta á við styrkveitingar úr „gamla“ Tónlistarsjóði og Hljóðritasjóði, en ekki Útflutningssjóði. 

Tónlistarmiðstöð sinnir úthlutun úr Tónlistarsjóði fyrir hönd Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.

Hér má nálgast upplýsingar og umsóknargögn.

Umsóknum, áfangaskýrslum og lokaskýrslum skal skilað á rafrænu formi.

Umsóknarsmiðja Tónlistarsjóðs

Tónlistarmiðstöð býður umsækjendum í Tónlistarsjóð að hittast í kaffi í sal miðstöðvarinnar þriðjudaginn 7. apríl kl. 15–18. Þar gefst tækifæri til að vinna að umsóknum í góðum félagsskap, skiptast á hugmyndum og spjalla um umsóknarferlið. Viðburðurinn er hugsaður sem opið og hvetjandi vinnurými fyrir þau sem eru að undirbúa umsókn.

Skráning fer fram hér

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar