Tónaflakk // Tónlistarmiðstöð á Akureyri

8
.  
March
 
2025

📅 13. mars ⏰ 17.00-18.30

📍 Tónlistarskólinn á Akureyri, Hofi, Strandgötu 12, 600 Akureyri.

Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við SSNE, stendur fyrir fræðsluviðburði á Akureyritil að kynna starfsemi sína og þá þjónustu og stuðning sem tónlistarfólk og fólk sem starfar í íslenskum tónlistargeira getur sótt til hennar. Að auki verður kynning á endurgreiðslum vegna hljóðritunar á tónlist á Íslandi og nýjum og efldum Tónlistarsjóði sem Tónlistarmiðstöð annast fyrir hönd Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis en næsti umsóknarfrestur sjóðsins er 15. apríl nk. Við hverjum öll sem koma að tónlist að fjölmenna og fræðast um hlutverk miðstöðvarinnar og hvaða aðstoð hún getur veitt.

Dagskrá:

Tónlistarmiðstöð: Meðal hlutverka hennar er að efla og kynna íslenska tónlist á alþjóðavettvangi, tengja íslenskt tónlistarfólk við erlenda markaði og veita ráðgjöf og stuðning til tónlistarfólks og annarra sem starfa í íslenskum tónlistargeira. Upplýsingar á rwww.icelandmusic.is

Tónlistarsjóður: Sjóðurinn veitir styrki til íslensks tónlistarfólks og verkefna með það að markmiði að styðja við þróun tónlistargeirans, efla útgáfu, tónlistarflutning og kynningu á íslenskri tónlist bæði heima og erlendis. Upplýsingar á www.icelandmusic.is/tonlistarsjodur

Endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist: Tónlistarfólk getur sótt um endurgreiðslu á kostnaði vegna hljóðritunar á tónlist á Íslandi frá Menningar-, nýsköpunar, og háskólaráðuneytinu. 80% eða meira af kostnaði þarf að hafa fallið til á Íslandi og hægt er að sækja um endurgreiðslu á allt að 25% af kostnaði. Upplýsingar á https://www.record.iceland.is/

Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg og fer fram hér.

Kaffi og með því! 

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar