Tónlistarmiðstöð leitar að öflugum einstaklingi til að sinna starfi markaðs- og kynningarstjóra. Í starfinu felst umsjón og eftirfylgni með markaðs- og kynningarmálum miðstöðvarinnar, samskipti við innlenda og erlenda fjölmiðla, samskipti við nánustu samstarfsaðila Tónlistarmiðstöðvar á sviði markaðs- og kynningarmála og yfirumsjón með miðlum Tónlistarmiðstöðvar og ýmis konar efnisgerð. Við leitum að skapandi og drífandi liðsfélaga sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.
Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september. Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og uppruna, til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið inni á Alfreð.
Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar um starfið veitir María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar (maria@icelandmusic.is).