Starf markaðs- og kynningarstjóra Tónlistarmiðstöðvar laust til umsóknar
Tónlistarmiðstöð leitar að öflugum einstaklingi til að sinna starfi markaðs- og kynningarstjóra. Í starfinu felst umsjón og eftirfylgni með markaðs- og kynningarmálum miðstöðvarinnar, samskipti við innlenda og erlenda fjölmiðla, samskipti við nánustu samstarfsaðila Tónlistarmiðstöðvar á sviði markaðs- og kynningarmála og yfirumsjón með miðlum Tónlistarmiðstöðvar og ýmis konar efnisgerð. Við leitum að skapandi og drífandi liðsfélaga sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.
Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september. Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með markaðs- og kynningarmálum miðstöðvarinnar
- Náið samstarf við framkvæmdastjóra og sérfræðinga miðstöðvarinnar um mótun samskiptastefnu Tónlistarmiðstöðvar, gerð kynningar- og markaðsáætlana, miðlun verkefna og viðburða og gerð kynningar- og markaðsáætlana
- Samskipti við innlenda og erlenda fjölmiðla og gerð fréttatilkynninga
- Samskipti við Íslandsstofu og aðra lykilsamstarfsaðila er varða markaðs- og kynningarmál
- Umsjón með vef, fréttabréfi og samfélagsmiðlum Tónlistarmiðstöðvar
- Umsjón með framleiðslu á kynningarefni og efnisgerð
- Umsjón með umfjöllunarvakt og skýrslugerð er varðar markaðs- og kynningarmál
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Haldbær reynsla af kynningar- og markaðsstörfum
- Áhugi á íslenskri tónlist og þekking á umhverfi tónlistar er kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti, setja fram og miðla upplýsingum og koma fram og halda kynningar á íslensku og ensku
- Góð tölvu- og tæknikunnátta og þekking á notkun samfélagsmiðla í kynningarstarfi
- Rík samskiptahæfni og færni til að vinna í teymi
- Áreiðanleiki, frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og uppruna, til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um starfið inni á Alfreð.
Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar um starfið veitir María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar (maria@icelandmusic.is).