RAKEL fyrsti gestur nýrrar Northern Rising seríu

09 September 2026

Önnur sería hlaðvarpsins Northern Rising hefur hafið göngu sína og er gestur fyrsta þáttarins engin önnur en RAKEL. Þættirnir, sem teknir voru upp yfir Iceland Airwaves hátíðina í fyrra, fylgja listafólki yfir hátíðina og veita einstaka innsýn í litrík ævintýri þeirra.

RAKEL er einstakt afl í íslensku tónlistarlífi. Fyrsta plata hennar a place to be kom út á vegum útgáfufyrirtækis Ólafs Arnalds, OPIA Community, á síðasta ári og hlaut hún mikið lof innlendra sem alþjóðlegra miðla. RAKEL vann verðlaunin Flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í vor, en a place to be var einnig tilnefnd plata ársins og var lagið always tilnefnt lag ársins.

 Allt frá því að platan leit dagsins ljós hefur RAKEL verið á ferð og flugi út um allan heim. Þar ber helst að nefna tónleikaferðalög með Of Monsters and Men og tónleika á mörgum af helstu faghátíðum heims, þar á meðal á SXSW, FOCUS Wales, Primavera Pro, SPOT Festival og Tallinn Music Week, svo eitthvað sé nefnt.

Í þættinum segir Rakel frá uppvaxtarárunum sem pylsusali í hinum margrómaða Staðarskála, flutningunum til Reykjavíkur á tvítugsárunum og ferðinni aftur til Staðar þar sem a place to be var samin.

Stjórnandi þáttarins er Tim Pogo, sem hefur verið tíður gestur á Airwaves frá árinu 2000 og er reyndur bandarískur fjölmiðlamaður með langa sögu úr útvarpi, sjónvarpi og stafrænni miðlun.

Northern Rising er framleitt af Tónlistarmiðstöð, Record in Iceland og The Reykjavík Grapevine.

Hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum, þar á meðal hér:

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar