.jpg)
Top 20 under 30 Nordic Music Biz verðlaunin eru veitt ungu fagfólki í Norræna tónlistariðnaðinum (undir 30 ára) sem þykir hafa skarað fram úr á sínum sviðum. Þetta geta verið umboðsaðilar, tónlistarforleggjarar, útgefendur tónleikahaldarar og svo framvegis. Verðlaunin verða veitt þann 10. september 2026 á By:Larm tónlistarhátíðinni í Osló, Noregi.
Þekkir þú einhvern sem á erindi? Ef svo er, getur þú sent inn tilnefningu með því að fylla út formið hér að neðan. Innsending tilnefninga má vera nafnlaus. Frestur til að tilnefna rennur út 30. Apríl.
Þau sem tilnefnd eru verða að starfa í fyrirtæki eða stofnun/samtökum á sviði tónlistar eða afþreyingar á Norðurlöndunum. Einungis má tilnefna þau sem eru fædd árið 1996 eða síðar.
Dómnefnd sem samanstendur af 15 aðilum í tónlistariðnaði Norðurlanda fer yfir innsendar tilnefningar og velur þau 20 sem þeim þykja skara fram úr. Við val á tilnefningum mun dómnefndin skoða ýmsa þætti, til að mynda starfsferil og þróun í starfi, velgengni fyrirtækis, viðurkenningar og umsagnir samstarfsfólks, áhrifin á norrænan tónlistariðnað árin 2025 - 2026, listræna þróun, nýsköpun, tekjur af tónleikaferðum, miðasölu og ásýnd/viðveru á samfélagsmiðlum.
Top 20 Under 30 leggur áherslu á kynjajafnvægi og fjölbreytileika við val á tilnefningum.
Íslenskir verðlaunahafar fyrri ára: