Iceland Airwaves 2026: Önnur tilkynning lent - RAKEL, SCAM og Úlfur Úlfur meðal rúmlega 20 nýrra íslenskra bókana

22 June 2026

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves tilkynnti á dögunum rúmlega 40 ný atriði sem munu koma fram á hátíðinni sem fer fram dagana 5.-7. nóvember. Íslensk tónlist skipar sem fyrr stóran sess í hjarta hátíðarinnar, en helmingur þeirra sem nú eru kynntir til leiks koma úr röðum íslensku senunnar.

Á meðal þeirra sem bætast við að þessu sinni er tónlistarkonan RAKEL, sem hlaut Iceland Airwaves PLUS verðlaunin árið 2025 og rafpoppdúettinn SCAM, sem er skipaður þeim Herdísi Stefánsdóttur og Sölku Valsdóttur, en þær síðarnefndu munu einnig koma fram á sérstökum kynningartónleikum Taste of Iceland og Iceland Airwaves í New York í haust. 

Hiphop-goðsagnirnar Úlfur Úlfur, alþýðupoppararnir Jónfrí og þjóðlagasveinarnir í LÓN snúa allir aftur á hátíðina og meðal nýliða má nefna sigurvegara Músíktilrauna Falinn gjóð, söngvaskáldin Bjarna Daníel, Andervel og Brynju og frík-fólk sveitirnar Einakrónu, Spouses og Marsibil.

Síðpönk og ný sál frá Bretlandi

Í flokki erlendra listamanna ber helst að nefna síðpönksveitina Heartworms sem hefur farið sigurför um bresku miðla eftir útgáfu frumburðar síns, Glutton For Punishment sem kom út í fyrra. London-sveitin The Itch og nýsálar listamaðurinn Jamie Woon munu sömuleiðis stíga á stokk á hátíðinni í haust. 


Nánari upplýsingar og miða á hátiðina má finna á síðu Iceland Airwaves

Listafólkið sem bættist við í dag (Íslenskt listafólk feitletrað):

Andervel (IS) | Any Young Mechanic (AU) | bed (JP) | Bjarni Daníel (IS) | BKPM (IS) | BLUAI (BE) | Brynja (IS) | Brynja Rán (IS) | Einakróna (IS) | Esmeralda Road (UK) | Falinn Gjóður (IS) | Flesh Machine (IS) | Formal Sppeedwear (UK) | Gosi (IS) | Haukur Páll (IS) | Heartworms (UK) | Jamie Duffy (IE) | Jamie Woon (UK) | JEFF3 (DK) | Jónfrí (IS) | knackered (IS) | LiteFun (IS) | LÓN (IS) | Lucy Dreams (AT) | Mar Pujol (ES-CT) | Marsibil (IS) | Nori (UK) | punktò (LT) | RAKEL (IS) | Revenge of Calculon (UK) | Sævar Jóhannsson (IS) | SAKARIS (FO) | SCAM (IS) | Sex Week (US) | Spouses (IS) | The Gnomes (AU) | The Itch (UK) | Them Flying Monkeys (PT) | Úlfur Úlfur (IS) | Valborg Ólafs (IS) | Vicky Sometani (UK) | YARD (IE)

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar