Current verkefnið tilkynnt: Blásið til leiks á by:larm!

04 September 2026

Current – Nordic Festival Talent Exchange er nýtt samstarfsverkefni Tónlistarmiðstöðvar, Iceland Airwaves, Music Norway, by:Larm, Music Export Denmark og SPOT Festival. Markmið verkefnisins er að efla norrænt samstarf á sviði lifandi tónlistar og faghátíða (e. showcase), styðja við listasköpun og auka alþjóðleg tækifæri tónlistarfólks á Norðurlöndunum. Verkefnið er styrkt af Norræna menningarsjóðnum.

Í lok maí var opnað fyrir umsóknir tónlistarfólks og var umsóknarfrestur til 2. júní. Alls bárust 118 umsóknir frá tónlistarfólki frá þátttökulöndunum þremur, sem endurspeglar mikinn áhuga á verkefninu og undirstrikar jafnframt þörfina á framtaki sem þessu. Útflutningsskrifstofurnar unnu ásamt hátíðunum að gerð stuttlista og völdu hátíðirnar að lokum sex þátttakendur, tvo frá hverju landi.

Tónlistarfólkinu verður boðið að koma fram á hátíðunum þremur og veitir verkefnið styrki fyrir ferðum og gistingu ásamt greiðslur fyrir framkomu. Þá mun Current skipuleggja sérsniðna dagskrá til að efla tengslanet þátttakenda og teymis þeirra á hverjum viðburði fyrir sig.

Current fer af stað í næstu viku á by:Larm í Ósló, heldur áfram á Iceland Airwaves í nóvember 2026 og lýkur á SPOT Festival í Árhúsum í maí 2027.

Kynntu þér tónlistarfólkið

Current kynnir með stolti það listafólk sem tekur þátt að þessu sinni, en tónlist þeirra spannar allt frá kraftmiklu teknói yfir í lágværa þjóðlagatónlist og flest annað þar á milli:

Alba Akvama

Alba Akvama tónskáld og lagahöfundur sem sleit skónum sínum í framsækinni neðanjarðarsenu Kaupmannahafnar.  Mínímalískar útsetningar, hugleiðslusöngur og angurværar gítarlínur mynda hljóðheim hennar sem er lágvær en spennuþrunginn. 

Arny Margret

Árný Margréti þarf vart að kynna fyrir Íslendingum. Í kjölfar síðustu útgáfu hennar, I Miss You, I Do, hefur þetta unga, margverðlaunaða söngvaskáld, verið að gera góða hluti á alþjóðavettvangi. 

Farveblind

Farveblind er danskt þríeyki sem hefur getið sér gott orð fyrir eldfima raftónlist og kraftmikla tónleika. Á nýjustu plötu þeirra, Micro Pleasures, víkka þeir sjóndeildarhringinn og fara í samstarf við allskonar listafólk á borð við k.flay, Elliphant, Emmeline, Jesse Markin og Django Django. 

Fig Tape

Fyrsta plata hins norska Fig Tape, Forcefed Serenity kom út í fyrra og hlaut hún tilnefningu til Spellmann verðlaunanna. Indískotin alt-popptónlist Fig Tape hefur hlotið töluverða útvarpsspilun í Noregi og víðar. 

Nom De Guerre

Nom De Guerre eru hip-hop dúett frá Osló. Tónlist þeirra er House-skotið jaðar hip-hop sem tekur áhrif úr öllum áttum, þar á meðal frá breskri klúbbatónlist og suður afrískum töktum. Þeir hafa gefið út tvær plötur, sem báðar hlutu tilnefningar til Spellmann verðlaunanna. 

SCAM

Þungavigtartónlistarkonurnar Herdís Stefánsdóttir og Salka Valsdóttir mynda Teknó-dúettin SCAM. Hljómsveitin kom fyrst fram á Iceland Airwaves í fyrra og var strax í kjölfarið bókuð á Roskilde Festival í Danmörku. 

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar