Tónlistarmiðstöð auglýsir eftir umsóknum vegna seinni úthlutunar úr nýjum Tónlistarsjóði árið 2024. Umsóknarfrestur er til og með 21. maí nk. Kl.15:00.
Samkvæmt nýjum tónlistarlögum og reglum um Tónlistarsjóð er hlutverk sjóðsins að efla íslenska tónlist, hljóðritagerð og þróunarstarf í íslenskum tónlistariðnaði. Sjóðurinn skal stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þeirra hér á landi sem erlendis.
Tónlistarsjóður veitir fimm styrki úr fjórum deildum:
Styrkir úr Tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til 18 mánaða í senn. Að jafnaði er hvorki gert ráð fyrir styrkveitingum til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana, sem hljóta regluleg rekstrarframlög, né til verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað.
Umsóknir verða ekki teknar til greina ef lokaskýrslur, eða áfangaskýrslur hafa ekki borist í umsóknarkerfið fyrir verkefni sem fengu styrk árið 2022 eða síðar. Það á við umsóknir úr „gamla“ Tónlistarsjóði og Hljóðritasjóði, en ekki Útflutningssjóði.
Tónlistarmiðstöð sinnir úthlutun úr Tónlistarsjóði fyrir hönd Menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Hér má nálgast upplýsingar og umsóknargögn.
Umsóknum, áfangaskýrslum og lokaskýrslum skal skilað á rafrænu formi.
Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 þann 21. maí 2024.
Tónlistarmiðstöð bauð upp á kynningu á Tónlistarsjóði miðvikudaginn 8. maí kl. 16:00. Nánar á Facebook viðburði Tónlistarmiðstöðvar>>