Bransakjaftæði: „Við vorum settir í sprinter og keyrðir um Bandaríkin í 9 mánuði“ segir Rubin Pollock, gítarleikari Kaleo

21 August 2025

Fyrsti þáttur nýrrar seríu Bransakjaftæðis er kominn út á allar helstu streymisveitur!

Bransakjaftæði eru hlaðvarpsþættir sem fjalla um tónlistarbransann og alla hans króka og kima. Hann er hugsaður sem valdeflandi tól fyrir ungt tónlistarfólk.

Í þættinum spjallar Sigtryggur Baldursson við tónlistarmanninn og gítarleikarann Rubin Pollock. Rubin er hvað þekktastur fyrir að vera gítarleikari víðfrægu hljómsveitarinnar Kaleo.

Sigtryggur leiðir Rubin í gegnum tónlistarferil gítarleikarans, allt frá fyrstu skrefum í úthverfum Reykjavíkur til risatúra í Bandaríkjunum.

Í þessari seríu Bransakjaftæðis mun Sigtryggur Baldursson einnig spjalla við Herdísi Stefánsdóttur og Pál Ragnar Pálsson um þeirra tónlistarferla.

Horfðu á hlaðvarpið hér:

Hlustaðu á hlaðvarpið hér:

Amazon music - Apple music - Pocketcasts

Podbean - Boomplaymusic

Bransakjaftæði er framleitt af Tónlistarmiðstöð.

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar