Tónlistarmiðstöð á Jazzahead! 2025 - Metfjöldi íslenskra þátttakenda

22
.  
April
 
2025

Líkt og undanfarin ár tekur Tónlistarmiðstöð virkan þátt í Jazzahead! 2025, stærstu jazzráðstefnu Evrópu, sem fram fer í Bremen í Þýskalandi 24.–27. apríl. Fulltrúar tólf íslenskra tónlistarverkefna verða viðstödd hátíðina, en um er að ræða metfjölda íslenskra verkefna á þessari hátíðinni sem undirstrikar vaxandi áhrif og stöðu íslensku jazzsenunnar á alþjóðavettvangi. 

Dagskrá Tónlistarmiðstöðvar á Jazzahead!

Tónlistarmiðstöð heldur utan um kynningarbás á hátíðinni sem verður heimavöllur þeirra íslensku verkefna sem taka þátt en básinn nýtist einstaklega vel til funda og annarar kynningar- og tenslamyndunarvinnu. Að auki tekur Tónlistarmiðstöð þátt í að skipuleggja tónleika á hliðardagskrá hátíðarinnar í samstarfi við kollega frá Svíþjóð, Færeyjum og Finnlandi. 

Þau verkefni sem kynnt verða á hátíðinni eru Freysteinn, Marey, Mikael Máni, Sunna Gunnlaugs, Ingi Bjarni, Anna Sóley, ADHD, Hist og, MOVE, Ómar Guðjónsson, Silva og Steini, og Fermented Friendship – samstarfsverkefni Óskars Guðjónssonar og Magnúsar Jóhanns. Óskar og Magnús Jóhann munu einnig koma fram á fyrrnefndum tónleikum sem norrænu miðstöðvarnar standa fyrir en þeir tónleikar verða á Kulturzentrum Lagerhaus föstudaginn 25. Apríl.

Auk listafólksins verða Jazzhátíð Reykjavíkur og jazzvefsíðan icelandjazz.is kynnt á bás Tónlistarmiðstöðvar. 

Hlustaðu á listafólkið sem verður kynnt á bás Tónlistarmiðstöðvar hér:

Um Jazzahead!

Jazzahead! er stærsta jazzráðstefna í Evrópu, oft kölluð „The Family Reunion of Jazz“. Þar koma saman tónlistarmenn, útgefendur, auglýsingastofur, fulltrúar tónlistarhátíða, bókarar, útvarpsstöðvar og allskonar áhugafólk um jazz. Um 20.000 þúsund gestir, þar af um 3.500 fagaðilar, fjölmenna hátíðina sem býður upp á um 200 tónleika. 

Allar nánari upplýsingar veitir Sigtryggur Baldursson: 

sigtryggur@icelandmusic.is

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar