
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri og Signý Leifsdóttir, sérfræðingur hjá Tónlistarmiðstöð, verða á Ísafirði dagana 24. og 25. nóvember og bjóða tónlistarfólki upp á ráðgjöf og spjall.
Við viljum kynnast sem flestu tónlistarfólki á svæðinu og fá betri innsýn í tónlistarlífið. Við hvetjum því öll sem starfa að tónlist eða innan tónlistargeirans til að koma og hitta okkur, hvort sem þau vilja nýta sér ráðgjöf eða einfaldlega spjalla, kynnast okkur og segja frá því sem þau eru að fást við.
Viðtölin eru 40 mínútur og fara fram í Vestfjarðarstofu, Suðurgötu 12. Takmarkaður fjöldi tíma er í boði og eru áhugasöm því hvött til að skrá sig sem fyrst með því að bóka tíma.
María Rut og Signý búa báðar yfir víðtækri reynslu úr tónlistargeiranum. María Rut er framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar og hefur áður starfað sem umboðsmaður Ásgeirs Trausta, mótað og leitt Tónlistarborgina Reykjavík og verið yfirmaður menningarmála hjá Reykjavíkurborg. Í gegnum störf sín hefur hún komið að fjölmörgum stefnumótandi verkefnum á sviði tónlistar og menningar, auk þess að hafa mikla reynslu af þróun verkefna, samstarfi og uppbyggingu tengslaneta innan tónlistargeirans, bæði hér heima og erlendis.
Signý sinnir hjá Tónlistarmiðstöð m.a. fræðslu og útflutningi og þá sérstaklega í sígildri-, samtíma- og kvimyndatónlist. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri Tónverkamiðstöðvar og leiddi gerð núverandi menningarstefnu Reykjavíkurborgar.
Hægt er að bóka tíma til að ræða fjölbreytt málefni, en hér eru nokkrar hugmyndir:
Opið samtal – hugmyndir, áskoranir og næstu skref: Ertu með hugmynd, verkefni eða áskorun sem þú vilt ræða? Opið samtal um möguleika, hindranir og næstu skref í tónlistarstarfi, hvort sem þú ert að hefja feril, þróa nýtt verkefni eða leita nýrra leiða.
Stefnumótun og starfsþróun: Aðstoð við að skýra framtíðarsýn, móta stefnu, setja raunhæf markmið og forgangsraða verkefnum. Hvernig er best að byggja upp feril eða þróa starfsemi til lengri tíma?
Bakland tónlistarfólks: Hvenær er tímabært að byggja upp teymi í kringum tónlistarferilinn og hvaða samstarfsaðila þarftu? Ráðgjöf um hlutverk umboðsmanna, bókara, útgefenda, kynningarfulltrúa og annarra fagaðila. Hvernig finnur þú rétta fólkið, byggir upp gott samstarf og forgangsraðar eftir þörfum?
Styrkir og umsóknir: Hvaða styrkir standa tónlistarfólki, fagaðilum og rekstraraðilum í tónlist til boða? Hvernig er best að undirbúa styrkumsóknir og hvað einkennir góðar umsóknir?
Útgáfumál og dreifing tónlistar: Hvað felst í því að gefa út eigin tónlist og hvenær borgar sig að vinna með útgáfufyrirtæki? Hver er munurinn á dreifingarfyrirtæki og útgáfufyrirtæki og hvaða leiðir standa tónlistarfólki til boða?
Kynningarmál og sögumiðlun: Hvernig kemur þú tónlist þinni, starfsemi eða verkefni á framfæri? Áhrifarík sögumiðlun (storytelling), skýr skilaboð, mikilvægi góðs undirbúnings, samskipti við fjölmiðla og leiðir til að auka sýnileika og spilun í útvarpi.
Samstarfsaðilar og fjármögnun: Hvernig er best að nálgast mögulega samstarfsaðila og styrktaraðila? Hvernig má byggja upp samstarf sem skapar virði fyrir báða aðila og finna nýjar leiðir til að fjármagna verkefni?
Útflutningur og alþjóðleg tækifæri: Hvað þarf að vera til staðar áður en haldið er út á erlenda markaði? Undirbúningur, val á mörkuðum, tengslamyndun, kynningarhátíðir (showcase festivals) og alþjóðlegt samstarf. Innsýn í útflutningsverkefni Tónlistarmiðstöðvar og hvernig hægt er að nýta þau tækifæri sem bjóðast.
Verkefni og þjónusta Tónlistarmiðstöðvar: Leiðsögn um tækifæri sem standa tónlistarfólki og fagaðilum til boða í gegnum fjölbreytt starf Tónlistarmiðstöðvar bæði hérlendis og á alþjóðlegum vettvangi.
Störf og tækifæri í tónlistargeiranum: Langar þig að starfa í tónlistargeiranum eða ertu að stíga þín fyrstu skref sem viðburðahaldari, umboðsmaður, bókari eða á öðrum vettvangi? Innsýn í fjölbreytt störf innan geirans, hvaða hæfni þau krefjast og hvernig hægt er að byggja upp reynslu og tengslanet.
Menningarpólitík, opinber stuðningur og hagsmunagæsla: Hvernig virkar hið opinbera stuðningskerfi tónlistar og hvernig er hægt að hafa áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku? Samskipti við stjórnvöld, hagsmunagæsla og samstarf við opinbera aðila.
