Signý Leifsdóttir, sérfræðingur hjá Tónlistarmiðstöð, verður á Akureyri 19. og 20. maí og býður tónlistarfólki upp á ráðgjöf.
Signý mun bjóða upp á 50 mínútna ráðgjafartíma. Hún býr yfir víðtækri reynslu úr tónlistargeiranum og sinnir hjá Tónlistarmiðstöð m.a. fræðslu og útflutningi og þá sérstaklega í sígildri-, samtíma- og kvimyndatónlist, en allt tónlistarfólk er velkomið burt séð frá tónlistarstefnum.
Ráðgjöfin fer fram í húsnæði SSNE að Skipagötu 9, 3. hæð. Takmarkaður fjöldi tíma er í boði og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig sem fyrst með því að bóka tíma hér.
Hvað er hægt að ræða?
Hægt er að bóka tíma til að ræða fjölbreytt málefni, en hér eru nokkrar hugmyndir:
- Stefnumótun og starfsþróun: Aðstoð við að skýra framtíðarsýn og setja markmið.
- Styrkir fyrir tónlistarfólk: Hvaða styrkir eru í boði og hvað þarf að gera til að fá styrki?
- Textagerð og kynningarmál: Hvernig er best að setja verkefni fram á faglegan hátt í umsóknum og kynningarefni?
- Útflutningur: Innsýn í þau verkefni sem Tónlistarmiðstöð tekur þátt í sem tengjast útflutningi s.s. showcase hátíðir. Hvað þarf að vera til staðar fyrir útflutning og hvernig hægt er að undirbúa sig?
- Kvikmyndatónlist og synch: Ráðgjöf um starfsumhverfi kvikmyndatónskálda og tengslamyndun í gegnum verkefni á borð við Nordic Film Music Days. Hver er munurinn á kvikmyndatónlist og synci og hvernig fær maður slík tækifæri?
- Rekstur tónlistarverkefna: Ráðgjöf um uppsetningu og rekstur verkefna eða fyrirtækja tengdum tónlist.
- Tónskáld: Ráðgjöf um uppbyggingu starfsferils sem tónskáld í samtímatónlist eða kvikmyndatónlist.
- Sjálfbærni og inngilding: Umræður um hvernig megi byggja upp tónlistarverkefni (t.d. hátíð) með tilliti til sjálfbærni og inngildingar í takt við tónlistarstefnu stjórnvalda.
- Þáttaka í verkefnum Tónlistarmiðstöðvar: Ráðgjöf/spjall um tækifæri sem tónlistarfólki býðst í gegnum starf Tónlistarmiðstöðvar s.s. RVK/Nantes, Hátíðarpott, vinnusmiðjur um Tónlistarsjóð, fræðsluviðburði og fl.
Hlökkum til að sjá ykkur!