Tónlistarlandið Ísland

24 March 2026

Hagstofa Íslands birti á dögunum niðurstöður úr Miðla- og menningarvoginni 2023. Gögnin, sem byggja á spurningakönnun sem lögð var fyrir 3000 manns á tímabilinu nóvember 2022 - maí 2023, sýna svo ekki verður um villst að tónlistin er drifkrafturinn í íslensku menningarlífi, hvort sem litið er til neyslu, þátttöku eða sköpunar.

Tónlistarneysla

Samkvæmt niðurstöðunum hlusta næstum allir landsmenn (94%) á tónlist og verja þeir til þess að meðaltali 78 mínútum á dag. Tónlist er þar í öðru sæti á eftir sjónvarpi og myndveitum, en athyglisvert er að sjá að Íslendingar segjast verja meiri tíma í að hlusta á tónlist en þeir eyða á samfélagsmiðlum (66 mínútur). Þá greiða 74% heimila fyrir áskrift að tónlistarveitu.

Þátttaka og lifandi tónlist

Tónlistariðkun er gríðarlega útbreidd en (48%) aðspurðra sögðust syngja eða spila á hljóðfæri sér til dægrarstyttingar. Tónlist er því langvinsælasta menningartengda áhugamál þjóðarinnar.

59% landsmanna sóttu tónleika á síðastliðnum 12 mánuðum. Er það hæsta hlutfall þátttöku í lista- og menningarviðburðum, en næst á eftir koma heimsóknir á sögustaði (58%) og söfn (57%).

Athugasemd um gögnin

Rétt er að taka fram að hér er um tilraunatölfræði að ræða. Hagstofa Íslands birtir eftirfarandi varðandi slíka útgáfu:

„Þar sem tilraunatölfræði felur í sér nýjungar í hagtölugerð getur verið til staðar nokkur óvissa um gæði og áreiðanleika þeirra gagna og aðferða sem hún byggir á. Þess vegna eru öll verkefni sem falla undir tilraunatölfræði vel merkt með sérstökum merkimiða á síðu Hagstofunnar.“

Til að skoða niðurstöður rannsóknarinnar frekar mælum við með að kíkja á miðla- og menningarvog Hagstofu Íslands. 

Tónlistarlandið Ísland í máli og myndum

 

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar