Þrír íslenskir tónlistarmenn valdir til þátttöku í Berlínarheimsókn Tónlistarmiðstöðvar

09 June 2026

Í kjölfar opins kalls fyrr á árinu hefur Tónlistarmiðstöð valið þrjá íslenska listamenn til þátttöku í alþjóðlegu heimsóknarverkefni í Berlín dagana 2.–5. október 2026.

Fyrir valinu urðu:

  • Áki Ásgeirsson, tónskáld og margmiðlunarlistamaður (S.L.Á.T.U.R.)
  • Bergrún Snæbjörnsdóttir, tónskáld
  • Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, söngkona og flytjandi (KIMI ensemble / Duo Gjörð)

Heimsóknin fer fram á sama tíma og hátíðarnar Month of Contemporary Music og Ensemble Festival. Framundan er þétt fjögurra daga dagskrá þar sem hópurinn sækir tónleika, hljóðver og tónleikastaði, auk þess að taka þátt í ráðstefnunni Time to Listen, þar sem sjónum er beint að alþjóðlegu samstarfi.

Verkefnið teygir anga sína víðar en áður og leiðir saman listafólk hvaðanæva úr Evrópu. Heimsóknin verður því ekki aðeins gluggi inn í þýska samtímatónlistarsenu, heldur dýrmætur vettvangur til að skapa til frekari tengsla og samstarfs á milli ólíkra evrópskra sena.

Val þátttakenda var í höndum dómnefndar skipaðri fulltrúum samstarfsaðila og INM / Field Notes Berlin.

Um þátttakendurnar

Áki Ásgeirsson er tónskáld og margmiðlunarlistamaður. Hann hefur samið tónlist fyrir hefðbundin hljóðfæri, auk þess að hanna ný hljóðfæri, hljóðhugbúnað, tölvustýrð hljóðfæri og hljóðinnsetningar. Hann er meðlimur í tónskáldahópnum S.L.Á.T.U.R. og einn af skipuleggjendum RAFLOST-hátíðarinnar. 

Áki hefur verið virkur þátttakandi í íslensku tilraunatónlistar- og listasenunni sem tónskáld, hljóðlistamaður og flytjandi. Hann er með bakgrunn í frjálsum spuna, raftónlist, skapandi forritun og algórythmískri tónlist og vinnur oft í samstarfi við listafólk úr ólíkum listgreinum.

Bergrún Snæbjörnsdóttir er tónskáld sem starfar á mörkum tilraunatónlistar, gjörninga og hljóðrannsókna. Í verkum sínum mótar hún lifandi og síbreytileg hljóðkerfi þar sem spuni, nótnaskrift og ófyrirsjáanleiki fléttast saman. 

Verk hennar hafa verið flutt og pöntuð af fjölda alþjóðlegra tónlistarhópa, hátíða og stofnana, þar á meðal International Contemporary Ensemble, INA GRM, Nordic Affect og Oslo Philharmonic. Bergrún er dósent í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands og fyrsta breiðskífa hennar, Skinweeper, kom út hjá Smekkleysu árið 2026.

Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir er klassískt menntuð söngkona sem sérhæfir sig í samtímatónlist. Þórgunnur hefur frumflutt yfir 25 verk, þar á meðal óperur, sólóverk og kammertónlist, þar á meðal verk sem hafa verið samin sérstaklega fyrir tríóið hennar KIMI ensemble og dúettinn Gjörð. Hún hefur komið fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ensemble Storstrøm, BIT20 Ensemble og á hátíðum eins og Bang on a Can (BNA) og Tête à Tête (UK).

Árið 2025 fór hún með aðalhlutverkið í nýju íslensku óperunni BRÍM og hlaut tilnefningar bæði til Íslensku tónlistarverðlaunanna '26 og Grímunnar '25. Með þátttöku í verkefninu vonast Þórgunnur til að skapa tækifæri fyrir bæði KIMI ensemble og Duo Gjörð.

Við óskum þeim öllum til hamingju og hlökkum til ferðarinnar! 

Verkefnið er unnið í samstarfi við INM / Field Notes Berlin, Art Music Denmark, Centre National de la Musique, Fonds Podiumkunsten Netherlands, Kultur:lx, Austrian Music Export, Music Finland, Music Norway og Pro Helvetia.

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar