Tækifæri framundan: Námskeið hjá INNI Music og opið fyrir umsóknir á Upprásina, Eurosonic og MENT
.png)
Þessa dagana eru töluvert af spennandi verkefnum að taka við umsóknum. Hvort sem þú vilt koma fram á tónlistarhátíðum eða viljir tengjast fagfólki í tónlistariðnaðinum, þá er vert að hafa þessa fresti í huga.
Nýtt námskeið haldið af INNI Music
LEIÐIR er nýtt námsskeið sem er haldið af INNI Music og er ætlað upprennandi tónskáldum og upptökustjórum (e. music producers) á Íslandi, hannað til að efla og styðja raddir sem hafa hingað til fengið takmarkað svigrúm í tónlistarheiminum.
Námskeiðið er haldið frá maí til nóvember 2025 og felur í sér sex hálfdags vinnusmiðjur, reglulega tíma með leiðbeinanda, samvinnuverkefni, stöðumat í miðju tímabilsins og lokaviðburð í haust þar sem afraksturinn verður sýndur.
LEIÐIR gefur þátttakendum tækifæri til að læra beint af fagfólki sem starfar á hæsta stigi tónlistariðnaðarins. Viðburðirnir verða haldnir hjá INNI í Reykjavík.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má nálgast hér >>>
Upprásin auglýsir eftir umsækjendum:
Hvar? Hörpu. Hvenær: September 2025 - maí 2026
Grasrótin blómstrar í Hörpu með tónleikaröðinni Uppsásinni sem hóf göngu sína haustið 2023.
Tónleikaröðin á heima í Kaldalóni á jarðhæð Hörpu og eru tónleikarnir haldnir eitt þriðjudagskvöld í mánuði frá september og fram í maí. Þrjú atriði koma fram hvert kvöld. Aðgangseyri er haldið í lágmarki til að gefa sem flestum kost á að mæta.
Upprásin var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokknum tónlistarviðburður ársins 2023 og til árlegu tónlistarverðlauna The Grapvevine í flokknum "Shout out", en verðlaunin eru veitt þeim sem eru talin hafa bætt tónlistarheiminn á árinu.
Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, Rás 2 og Landsbankann, stendur fyrir tónleikaröðinni.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má nálgast hér >>>
Opið fyrir umsóknir á Eurosonic
Hvar? Groningen, Holland. Hvenær: 14-17 janúar 2026.
Eurosonic Noorderslag (ESNS) í Groningen, Hollandi er ein af stærstu faghátíðum Evrópu. Hátíðin er haldin ár hvert um miðjan janúar og einblínir hún á nýja evrópska tónlist. ESNS býður upp á 350 tónleika frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og laðar hún að sér yfir 40.000 gesti, þarf af 400 bókara frá alþjóðlegum tónlistarhátíðum.
Samhliða hátíðinni fer fram ráðstefna sem býður upp á vinnustofur, pallborðsumræður og kynningar svo eitthvað sé nefnt. Hellingur af íslensku listafólki hefur stigið á stokk á hátíðinni og í kjölfarið fengið ótal önnur tækifæri og má þar t.a.m. nefna Ásgeir, Vök, Sunnu Margréti, Supersport og fleiri.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má nálgast hér >>>
Opið fyrir umsóknir á MENT
Hvar: Ljubljana, Slóveníu. Hvenær: 18 - 21 febrúar 2026.
MENT Ljubljana stuðlar að því, í samspili við ráðstefnuna, að kynna tónlistarfólk frá Evrópu fyrir alþjóðlegum tónlistarfagaðilum og áhorfendum. Hátíðin þjónar sem vettvangur fyrir listafólk, tónlistarfagaðila og tónlistarunnendur til að hittast.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má nálgast hér >>>
Skráðu þig á póstlista Tónlistarmiðstöðvar til að fá nýjustu tækifærin beint í pósthólfið :O)