
Nordic Film Music Days 2026 er spennandi vettvangur fyrir kvikmyndatónskáld til að koma sér á framfæri og styrkja tengsl við alþjóðlega kvikmynda- og tónlistarbransann. Hátíðin fer fram í Berlín 14. og 15. febrúar, í tengslum við Berlinale kvikmyndahátíðina, í sendiráðum Norðurlandanna í Berlín. Þar munu norræn tónskáld hittast og verða haldnar vinnustofur um samninga, pallborð um kvikmyndatónlist ásamt því að HARPA verðlaunin verða veitt.
Í ár býður Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við NFMD, völdum tónskáldum tækifæri til að taka þátt í tengslamyndununarfundum með framleiðendum, leikstjórum og öðrum lykilaðilum í kvikmyndabransanum á Berlinale. Sækja þarf um og fá þau tónskáld sem verða fyrir valinu ferðastyrk upp á 75.000. Þátttaka í viðburðum hátíðarinnar er ókeypis en greiða þarf fyrir flug og gistingu.
Við hvetjum öll kvikmyndatónskáld sem vilja kynna sig á norrænum og alþjóðlegum vettvangi að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 5. desember
Frekari upplýsingar veitir Signý Leifsdóttir: signy@icelandmusic.is
.png)
