.jpg)
Iceland Airwaves tilkynnti í dag fyrsta listafólkið sem fram kemur á hátíðinni í ár, sem haldin verður í miðborg Reykjavíkur dagana 4.–8. nóvember 2026. Hátíðin heldur uppteknum hætti og beinir sjónum sínum að frjórri grasrót íslensku tónlistarsenunnar, ásamt því að bjóða því ferskasta sem er að gerast á alþjóðavísu í heimsókn. Tilkynnt hafa verið 28 atriði á aðaldagskrá hátíðarinnar, þar af 12 íslensk, ásamt þremur hliðarviðburðum sem allir fara fram í Hörpu.
Íslenska listafólkið er í forgrunni að vanda. Samhliða nöfnum á borð við Júníus Meyvant, Axel Flóvent, MAMMÚT, Emmsjé Gauta og Árný Margréti – sem öll hafa markað djúp spor á hátíðina og íslenskt tónlistarlíf undanfarin ár – ber hæst að nefna eftirtektarverða bókun á íslensk-filippseysku ævintýrapoppstjörnunni Yaelokre.
Þótt Yaelokre sé ef til vill ekki enn á hvers manns vörum hér á landi, er um að ræða eina af skærustu stjörnunum sem landið hefur getið af sér á síðustu árum. Tónleikarnir á Iceland Airwaves marka jafnframt fyrsta sinn sem hán stígur á svið á Íslandi síðan hán sló rækilega í gegn á TikTok árið 2024.
Daði Freyr hefur einnig staðfest þátttöku sína, en hann mun koma fram ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands á sérstökum hliðarviðburði í Eldborgarsal Hörpu á fimmtudagskvöldinu.
Grasrótin verður auðvitað einnig í brennidepli, enda er hátíðin einna þekktust sem mikilvægur stökkpallur fyrir ungt íslenskt tónlistarfólk. Meðal staðfestra bókana má nefna partísprengjurnar í Inspector Spacetime og Amor Vincit Omnia, tilraunapopparann Róshildi, framúrstefnurokkarana virgin orchestra, skósýnis (shoegaze) brautryðjendurna Oyama og glænýja fólkdúettinn TÁR.
Meðal helstu alþjóðlegra bókana má nefna tónleika breska malbiksskáldsins The Streets í Eldborg á sunnudagskvöldinu. Þar mun listamaðurinn flytja goðsagnakennda fyrstu plötu sína, A Grand Don’t Come for Free, í fullri lengd í fyrsta sinn.
Breska klúbbadrottningin Shygirl mætir einnig til leiks, en hún mun koma fram á hliðarviðburði í Silfurbergi á miðvikudagskvöldinu 4. nóvember.
Listafólkið sem tilkynnt var í dag (íslenskt listafólk feitletrað): Adult DVD (UK) | Amor Vincit Omnia (IS) | Arima Ederra (US) | Arny Margret (IS) | Axel Flóvent (IS) | Bana Zahiti (XK) | Bleech 9:3 (IE) | David Bay (DE) | Dove Ellis (IE) | Emmsjé Gauti (IS) | HÉR (PL) | Inspector Spacetime (IS) | Joe & the Shitboys (FO) | Júníus Meyvant (IS) | KOIKOI (RS) | Liim (US) | MAMMÚT (IS) | Oyama (IS) | PISS (CA) | Pollyfromthedirt (UK) | Róshildur (IS) | RSP (FO) | Skeler (AU) | SYL (DK) | TÁR (IS) | Tunghoyrt (FO) | virgin orchestra (IS) | Yaelokre (PH/IS)
.jpg)
.jpg)