Fundað með Spotify til að styrkja stöðu íslenskrar tónlistar

28 April 2026

Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar fóru á dögunum fyrir fríðu föruneyti fulltrúa hagsmunaaðila í tónlist á fund með Spotify. Markmið fundarins, sem fór fram í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Stokkhólmi þann 22. apríl, var að ræða framtíð íslenskrar tónlistar á streymisveitunni og styrkja stöðu íslenskra tónlistarmanna.

Íslenska sendinefndin vakti einnig athygli á því að markaðshlutdeild Spotify á Íslandi sé afar há eða 97%. Á sama tíma er hlutfall íslenskrar tónlistar af heildarneyslu tónlistar hér á landi, einungis um 20%, sem telst lágt í samanburði við mörg önnur lönd og mun lægra en var hér áður, fyrir tilkomu streymis.  

„Við vitum að margt spilar þarna inn í en vildum fá eins glögga mynd af stöðunni og mögulegt er. Því óskuðum við eftir frekari gögnum um hlustunarmynstur á Íslandi, hvernig fólk uppgötvar tónlist á streymisveitunni og árangur íslenskra listamanna auk samanburðar við önnur Norðurlönd,“ segir Logi. Hann segir það líka skipta máli að hafa áhuga á samlöndum sínum og vilja til þess að kynna sér nýja tónlist.

„Þrátt fyrir að streymi hafi aukið tekjur af tónlist á heimsvísu eftir langvarandi niðursveiflu hefur hlutur íslenskrar tónlistar af heildartónlistarneyslu hér á landi dregist verulega saman með tilkomu Spotify og er nú um 20%, samanborið við um 65% að meðaltali á árunum 2001–2015. Það er brýnt mál fyrir okkur sem störfum að framgangi íslenskrar tónlistar að styrkja stöðu hennar á heimamarkaði. Það viljum við gera í samstarfi við Spotify, sem gegnir lykilhlutverki hér á landi með 97% markaðshlutdeild,“ segir María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar.

Ísland standi sterkt miðað við stærð

Á fundinum kynnti Spotify stöðu íslenskrar tónlistar á streymisveitunni og bar hana saman við önnur Norðurlönd. Þar kom fram að íslenskir listamenn á borð við Laufeyju, Kaleo og Of Monsters and Men hafi náð umtalsverðum árangri á alþjóðavísu á Spotify og að Ísland standi sterkt, miðað við stærð, á alþjóðlegum tónlistarmarkaði.  

Á fundinum var sérstaklega fjallað um áskoranir sem snúa að sýnileika og aðgengi að íslenskri tónlist. Þar á meðal voru áhrif spilunarlista á dreifingu efnis og sýnileiki íslenskra listamanna í ritstýrðum og sjálfvirkum tillögum til hlustenda. Þá voru rædd möguleg tækifæri til samstarfs um aðgerðir sem miða að því að hvetja til hlustunar á íslenska tónlist.  

Einnig var rætt um hlutverk Spotify í að styðja við tónlistarumhverfi á smærri mörkuðum og málsvæðum og hvernig best megi nýta gögn og greiningar til að bæta stöðu íslenskrar tónlistar.

„Það eru ýmis tækifæri fólgin í því að auka sýnileika íslenskra tónlistar á streymisveitunni. Valdir spilunarlistar eru hluti af þessum sýnileika en algrímið leikur sístækkandi hlutverk og sögðu fulltrúar Spotify að ekki yrði hróflað við því. Þá voru einnig ræddir möguleikar á að Spotify komi með beinum hætti að viðburðum, hátíðum og annarri tónlistarstarfsemi hér á landi,“ segir Logi.  

Vilji til áframhaldandi samstarfs

Samhljómur var um mikilvægi þess að efla sýnileika íslenskrar tónlistar. Auk þess var lögð áhersla á að aukin hlustun á íslenska tónlist sé lykilatriði fyrir tekjur tónlistarmanna og stuðning við íslenska tungu og menningu. Á fundinum kom jafnframt fram ríkur vilji til áframhaldandi samtals og mögulegs samstarfs um aðgerðir sem miða að því að styrkja stöðu íslenskrar tónlistar í stafrænu umhverfi.  

Þess má geta að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti hefur gert samning við Tónlistarmiðstöð um átaksverkefni sem miðar að því að auka hlustun á íslenska tónlist á streymisveitum hér á landi. Tónlistarmiðstöð hefur, í samstarfi við Rannsóknarsetur skapandi greina, látið útbúa könnun þar sem spurt verður út í hlustun fólks á tónlist, þá sérstaklega íslenska tónlist. Niðurstöður könnunarinnar ættu að liggja fyrir um mánaðamótin maí/júní en í haust er stefnt á sérstakt kynningarátak í samstarfi við fjölmarga aðila til að hvetja fólk til að hlusta meira á íslenska tónlist á streymisveitum.

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar