Best Fit Sessions - Amor Vincit Omnia

06 March 2026

Amor Vincit Omnia buðu The Line of Best Fit genginu í stúdíóheimsókn í Airwaves vikunni í nóvember síðastliðnum. Þar fluttu þau lagið Ber sem má finna á nýútkominni stuttskífu dúettsins “Extended babe”

Amor Vincit Omnia samanstendur af pródúsentinum Baldri Skúlasyni og söngkonunni Erlu Hlín Guðmundsdóttur. Nafn sveitarinnar vísar í latneska málsháttinn „ástin sigrar allt“ og fangar húmoríska nálgun þeirra á alvarleg viðfangsefni; í þeirra augum er nafnið í senn fallegt og dálítið fáránlegt. Tónlist sveitarinnar er að sama skapi leikandi og sérvitur og einkennist af ákveðnu “íslensku” kæruleysi. 

Amor fylgja eftir útgáfu stuttskífunnar með smá faghátíðaflakki sem hefst í Bandaríkjunum seinna í mánuðinum. Fyrst kemur sveitin fram á New Colossus í New York og svo á þrennum tónleikum risahátíðinni SXSW í Austin, Texas, þar á meðal á kvöldi sem The Line of Best Fit skipuleggur.

Myndbandið var unnið af TLOBF í samstarfi við Record in Iceland.

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar