.jpg)
NOMEX-samtökin hafa tilkynnt handhafa Top 20 Under 30 - Nordic Music Biz viðurkenninganna árið 2026.
Fulltrúar Íslands í ár eru Atli Freyr Hjaltason, Aurora DiRienzo og Francesca Stoppani og munu þau taka við þessari virtu viðurkenningu við hátíðlega athöfn á tónlistarhátíðinni By:Larm í Ósló í september.
Verðlaunin eru veitt af NOMEX (Nordic Music Export), samstarfsvettvangi tónlistarútflutningsskrifstofa Norðurlandanna. Á hverju ári auglýsa miðstöðvarnar eftir tilnefningum og fer svo alþjóðleg dómnefnd yfir innsendingarnar og velur þá 20 einstaklinga undir þrítugu sem verða heiðraðir fyrir framúrskarandi störf sín í tónlistargeiranum á Norðurlöndunum. Fulltrúar Íslands í dómnefndinni voru þau Agnes Hlynsdóttir, viðburðarstjórnandi, Soffía Kristín Jónsdóttir, meðstofnafni Iceland Sync og Ægir Sindri Bjarnason, tónlistarmaður, útgefandi og tónleikahaldari, en þau hafa öll hlotið sömu viðurkenningu áður.
Markmið NOMEX er að efla samvinnu innan norræna tónlistariðnaðarins, en samanlagt mynda Norðurlöndin sjötta stærsta tónlistarmarkað heims. Top 20 Under 30 verðlaunin eru hluti af því markmiði og varpa ljósi á mikilvægt starf ungs fagfólks á svæðinu og styður það í alþjóðlegri tengslamyndun.
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar segir Top 20 under 30 verðlaunin gegna mikilvægu hlutverki í því að styðja ungt fólk í tónlistargeiranum og hvetja til áframhaldandi faglegra starfa:
„Við erum ótrúlega stolt af fulltrúum okkar þremur í ár. Þau hafa hvert um sig lagt mikilvægt af mörkum til íslensks tónlistarlífs og unnið af ástríðu, metnaði og fagmennsku fyrir íslenska tónlist og tónlistarfólk. Starf þeirra fer gjarnan fram á bak við tjöldin og því er sérstaklega ánægjulegt að sjá þau fá þá viðurkenningu sem þau eiga svo sannarlega skilið. Við óskum þeim öllum hjartanlega til hamingju.“ segir María Rut.
Atli Freyr Hjaltason - Vökufélagið
Atli Freyr Hjaltason er formaður Vökufélagsins, félags sem vinnur að stuðningi og þróun senu fyrir þjóðlistir á Íslandi. Samhliða því kemur hann að skipulagningu fjölmargra viðburða sem snerta á óáþreifanlegum menningararfi, til dæmis Vöku þjóðlistahátíð, Sagnavöku og danskvöldum hjá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur. Þar að auki stundar Atli Freyr rannsóknir á þjóðdönsum og tónlist og stóð hann til að mynda fyrir útgáfu á Danslögum Jónasar, fiðluhandriti frá árinu 1864. Útgáfan kom út í fyrrahaust og fylgdu henni ýmis námskeið og tónleikar sem hvöttu börn og ungmenni til að tileinka sér viðfangsefnið, dansa dansana og flytja tónlistina sjálfa.
Atli Freyr er ötull málsvari þjóðlista. Hann gegnir stjórnar- og ráðgjafahlutverkum hjá hinum ýmsu íslensku og norrænu samtökum og leggur með vinnu sinni sitt af mörkum til stuðnings við menningarlíf og miðlun menningararfs og lista til komandi kynslóða.
Aurora Di Rienzo - Trúnó Music
Aurora Maria Sif Di Rienzo er íslensk-ítalskur umboðsmaður og ráðgjafi. Hún lauk BASc-gráðu í listum og vísindum frá University College London (UCL) og síðar MSc-gráðu í menningarstjórnun frá Copenhagen Business School (CBS), þar sem hún stofnaði meðal annars CBS Music Bizz Society árið 2023.
Að námi loknu fór Aurora beinustu leið í umboðsmennsku og vinnur hún í dag með mörgu af áhugaverðasta unga tónlistarfólki landsins, þar á meðal Inspector Spacetime, Lúpínu og RAKEL. Í ársbyrjun 2026 stofnaði Aurora eigið umboðs- og ráðgjafafyrirtæki, Trúnó Music, en fljótlega í kjölfar stofnun fyrirtækisins landaði hún stórum „sync“-samningi við tæknirisann Apple fyrir hljómsveitina Inspector Spacetime.
Francesca Stoppani - Worship Bookings
Francesca Stoppani er ítalskur viðburðastjóri, bókhaldari og tónlistarblaðamaður búsett í Reykjavík. Hún hefur víðtæka reynslu úr evrópska tónlistargeiranum, en hún bjó og starfaði í París, Ósló, Bergen, Rovaniemi og Færeyjum áður en hún fluttist til Íslands.
Á árunum 2023 til 2025 skrifaði Francesca fasta dálkinn Filthy Interviews fyrir tónlistar- og menningarblaðið The Reykjavík Grapevine, þar sem hún fjallaði ítarlega um íslensku neðanjarðarsenuna. Árið 2024 stofnaði hún bókunarskrifstofuna Worship Bookings, sem einblínir á þungarokk og tilraunatónlist. Þá gekk hún jafnframt til liðs við skipulagsteymi Andkristni, elstu þungarokkshátíðar landsins.
Samhliða tónleikahaldi hér á landi og erlendis skipuleggur Francesca tónleikaferðalög fyrir íslenskar neðanjarðarhljómsveitir á alþjóðavettvangi, auk þess að aðstoða listafólk við mótun á kynningarefni, vörumerkjum og almannatengslum.
Danmörk
Luna Hernø Balslev (30)
Senior Project Manager // All Things Live Denmark
Breki Adiel Stefánsson (26)
Co-Founder & Booker // Urban Breakout
Sofie Juul Lind (30)
Head of Live Marketing, Nordic Team Lead // United Stage
Carl Emil Stolpe (28)
A&R Manager // Universal Music Denmark / Island Records Nordic
Finnland
Iina Ahdeala (28)
Content Manager / Impact Team, Warner Music Finland
Dante Correa (27)
Co-Founder Below0 & Helsinki Music Week
Emma Rühr (27)
Promoter & Agent // Fullsteam Agency
Svíþjóð
Susanna Boder (29)
A&R/ Artist manager // Monza Music Entertainment
Mamdouh Elmchad (27) - Gothenburg
Founder, Not Your Habibi // Digital Communication & Programme Development, Göteborg & Co
Evie Bloom (29)
Senior Manager, Nordics (Artist Development & Commercial Partnership // AWAL
Jonathan Haile (28)
A&R & Label Manager // Ada Nordics
Linnéa Alouani (30)
Creative Manager, A&R // Universal Music Publishing Nordics
Lili Rönkä (28)
Senior Manager, Impact Marketing, EMEA // Warner Music
Noregur:
Fredrik Børstad (28)
Head of A&R // Toothfairy Publishing
Imane Istaleb (29)
Head of Live // Kreatell, World of Walker
Shirin Khademi (30)
Co-Founder & Partner // AirTime AS
Ulysse Bonfils (22)
Founder // Distortion