Seinni úthlutun Tónlistarsjóðs fyrir 2025 - 56 milljónum veitt til 58 verkefna
.jpg)
Úthlutað hefur verið úr öllum deildum Tónlistarsjóðs, en sjóðurinn var stofnaður í fyrra á grundvelli Tónlistarlaga sem sett voru í maí 2023. Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn þann 4. mars sl. og var umsóknarfrestur þann 15. apríl.
Hlutverk Tónlistarsjóðs er m.a. að efla íslenska tónlist, hljóðritagerð og þróunarstarf í íslenskum tónlistariðnaði með því að veita fjárhagslegan stuðning. Sjóðurinn skal einnig stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þess hér á landi sem erlendis.
Sjóðnum er skipt í fjórar deildir sem allar hafa ólíkar áherslur og er ætlað að útvíkka úthlutanir til verkefna sem styrkja tónlistargeirann á sem breiðustum grunni.
Tónlistarsjóður heyrir undir menningar- nýsköpunar- og háskólaáðuneyti og er í umsýslu Tónlistarmiðstöðvar. Ráðherra skipar sjálfstæðar úthlutunarnefndir fyrir allar fjórar deildir sjóðsins. Þær úthlutunarnefndir meta styrkhæfi umsókna og gera tillögur til ráðherra um afgreiðslu þeirra.
Í sjóðinn bárust alls 386 umsóknir og var heildarupphæð styrkumsókna 600.619.671 kr. Til úthlutunar voru 56.355.000 kr. sem veitt var til 58 verkefna sem skiptast svo á milli fjögurra deilda sjóðsins.
Frumsköpun og útgáfa - tónlistarstyrkir
198 umsóknir sóttu um alls 257.144.714 kr. Alls er 20.200.000 kr. veitt til 22 verkefna. Hæstu verkefnastyrkina eða 1.750.000 kr. hvor fá hljómsveitin GRÓA og tónlistarmaðurinn Arnór Dan. Þá hlýtur Ingibjörg Guðlaugsdóttir 1.7 m.kr. í styrk og Skúli Sverrisson 1.5 m.kr.
Árangurshlutfall umsókna er 11%, 9% í sígildri og samtímatónlist, 11% í popp, rokk og indí, djass og blús, og rapp- og hip hop, 16% í raftónlist og minna í öðrum tónlistarstefnum.
23% úthlutaðrar upphæðar renna til verkefna í sígildri- og samtímatónlist, 35% til popp, rokk og indí, 16% til raftónlistar og rest til annarra tónlistarstefna.
Lifandi flutningur - flytjendastyrkir
98 umsóknir sóttu um alls 141.776.501 kr. Alls er 15.385.000 kr. úthlutað til 20 verkefna. Kammerkórinn Schola Cantorum og hljómsveitin Umbra hljóta hæstu verkefnastyrkina eða 1.5 m.kr. hvor. Sviðslistahópurinn Óður, Benedikt Kristjánsson og Una Sveinbjarnardóttir hljóta öll verkefnastyrk upp á 1 m.kr.
Árangurshlutfall umsókna er 20%. 75% úthlutaðrar upphæðar renna til verkefna í sígildri og samtímatónlist, 8% til popp, rokk og indí, 10% til heims- og þjóðlagartónlistar og rest til annarra tónlistarstefna og er það nokkuð í samræmi við hlutfall milli tónlistarstefna sem sóttu um.
Gerður er einn langtímasamningur:
Kammerkórinn Cantoque hlýtur 3 m.kr. í langtímastyrk til tveggja ára fyrir starfsemi Cantoque Ensemble 2026-2027.
Auk þess eru eftirfarandi verkefni með langtímasamninga í gildi 2025:
Nordic Affect - 2.5 m.kr. (2025 -2026)
Caput - 6 m.kr. (2024-2026)
Kammersveit Reykjavíkur - 5 m.kr. (2024-2026)
Cauda Collective - 1 m.kr. (2024-2025)
Þróun og innviðir - viðskiptastyrkir
67 umsóknir sóttu um samtals 170.560.899 kr. Úthlutað er 14.720.000 kr. til 10 verkefna. Hæstu verkefnastyrkina upp á 2.5 m.kr. hljóta Iceland Sync Creative og VAKA þjóðlistahátíð. Þá hlýtur WindWorks í Norðri 2 m.kr. í styrk.
Heildar árangurshlutfall umsókna er 15%. 27% úthlutaðrar upphæðar renna til sígildrar og samtímatónlistar, 27% til popp, rokk og indí, 17% til heims- og þjóðlagatónlistar, 18% til verkefna sem vinna þvert á tónlistarstefnur og rest til annarra tónlistarstefna.
Úthlutunarnefnd ákvað að veita enga nýja langtímasamninga í þessari úthlutun en eftirfarandi verkefni eru með langtímasamning í gildi 2025:
Myrkir músíkdagar - 4 m.kr. (2025-2026)
Óperudagar - 4 m.kr. (2024-2026)
Sönghátíð í Hafnarborg - 2 m.kr. (2024-2026)
Reykholtshátíð - 1 m.kr. (2024-2026)
Bræðslan - 1.5 m.kr. (2024-2026)
Sumartónleikar í Skálholti - 4 m.kr. (2024-2025)
Iceland Airwaves - 6 m.kr. (2024-2026)
Mengi - 3 m.kr. (2024-2025)
Útflutningur - markaðsstyrkir
23 umsóknir sóttu um 31.137.557 kr. Úthlutað er 6.050.000 kr. til 6 verkefna. Hæstu styrkina hljóta Bríet og Gyða Valtýsdóttir upp á 1.5 m.kr. hvor.
Árangurshlutfall umsókna er 26%. 72% úthlutaðrar upphæðar renna til verkefna í popp, rokk og indí, 17% til sígildrar og samtímatónlistar og 11% til raftónlistar.
Skipting veittra styrkja út frá kyni, landshlutum og tegund umsækjanda
Flestar umsóknir bárust frá verkefnum þar sem forsvarsmaður umsóknar var karl, eða 53,8% og 46,2% umsókna voru frá konum. Árangurshlutfall umsókna var 13% hjá körlum og 17% hjá konum.
Flestir styrkir Tónlistarsjóðs að þessu sinni eru veittir til einstaklinga eða 64%, 14% fara til fyrirtækja og aðrir styrkir til félagasamtaka, stofnanna og annarra umsækjenda.
Heildar árangurshlutfall umsókna er 15%. Alls 80% af veittri upphæð fara til verkefna á höfuðborgarsvæðinu, 12% til verkefna annars staðar á landinu og 8% til verkefna sem fara fram erlendis.
Úthlutunarnefndir skipuðu eftirfarandi:
Tónlistarstyrkir - Deild frumsköpunar og útgáfu:
Sindri Ástmarsson, formaður
Hafdís Bjarnadóttir
Kristjana Stefánsdóttir
Flytjendastyrkir - Deild lifandi flutnings:
Guðmundur Birgir Halldórsson, formaður
Elfa Lilja Gísladóttir
Arnar Eggert Thoroddsen
Viðskiptastyrkir - Deild innviða og þróunar:
Hildur Kristín Stefánsdóttir, formaður
Freyr Eyjólfsson
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
Markaðsstyrkir - Deild útflutnings
Sindri Magnússon, formaður
Elíza Geirsdóttir Newman
Melkorka Ólafsdóttir
Listi yfir allar styrkveitingar
Frumsköpun og útgáfa - tónlistarstyrkir:
Arnór Dan Arnarson
Arnór Dan fyrsta solo platan
Úthlutuð upphæð: 1.750.000 kr.
Hrafnhildur Einarsdóttir
Fimmta breiðskýfa GRÓU
Úthlutuð upphæð: 1.750.000 kr.
Ingibjörg Guðlaugsdóttir
Urta
Úthlutuð upphæð: 1.700.000 kr.
Skúli Sverrisson
Ný plata með Bill Frisell
Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
Viktor Ingi Guðmundsson
Temporary Troubles
Úthlutuð upphæð: 1.250.000 kr.
Emmsjé ehf.
MC
Úthlutuð upphæð: 1.250.000 kr.
Sigurlaug Thorarensen
BSÍ og stóru smáskífurnar þrjár
Úthlutuð upphæð: 1.250.000 kr.
Kristofer Rodriguez Svönuson
Watachico
Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Tómas Ragnar Einarsson
G&T
Úthlutuð upphæð: 800.000 kr.
Ida Nielsen Juhl
EP master. release and promotion
Úthlutuð upphæð: 750.000 kr.
Dýrfinna Benita Basalan
Frelsi
Úthlutuð upphæð: 750.000 kr.
Ingibjörg Elsa Turchi
Eonia-upptökur
Úthlutuð upphæð: 750.000 kr.
Torfi Tómasson
Smáskífur TORFA 2025
Úthlutuð upphæð: 750.000 kr.
Haukur Þór Harðarson
Nýtt verk fyrir Kammersveit Reykjavíkur
Úthlutuð upphæð: 750.000 kr.
Helgi Rafn Ingvarsson
Veiðiferð með pabba að Hlíðarvatni
Úthlutuð upphæð: 700.000 kr.
Hanna Mia Matsdóttir Jonstam Brekkan
Breathe – Original EP by Hanna Mia
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Stirnir Kjartansson
“The Possibility” fyrir rafmagnsgítarkór
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Sprengjuhöllin ehf
Unfiled breiðskífa
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Valgerður G Halldórsdóttir
Hugi Guðmundsson; Kórverk fyrir tvo kóra
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
de la Sól ehf.
Tímaglas. fyrsta breiðskífa Sölku Sólar
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
John Patrick McCowen
New Album of Compositions for Solo Contrabass Clarinet - recorded at Hallgrímskirkja
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Árni Þór Árnason
Tófa LP4
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Lifandi flutningur - flytjendastyrkir
Kammerkórinn Cantoque
Starfsemi Cantoque Ensemble 2026-2027
Úthlutuð upphæð: 3.000.000 kr.
Schola Cantorum.kammerkór
Tónleika- og upptökuverkefni Schola Cantorum kammerkórs. Tvö starfsár.
Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
Penumbra slf.
Starfsemi Umbru - 2025-2027
Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
Sviðslistahópurinn Óður
Hljómsveitarstyrkur til Óðs
Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Benedikt Kristjánsson
Jóhannesarpassíu J.S Bachs í 4. útgáfu ársins 1749 frumflutt á Íslandi
Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Una Sveinbjarnardóttir
Tónleikar Translations
Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Sólveig Steinþórsdóttir
Píanókvartettinn Negla flytur nýja íslenska píanókvartetta
Úthlutuð upphæð: 800.000 kr.
Ingibjörg Guðlaugsdóttir
Urta - söguljóð.
Úthlutuð upphæð: 760.000 kr.
Hildigunnur Halldórsdóttir
15:15 tónleikasyrpan
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Iðunn Einarsdóttir
Í hennar heimi - Tónleikar á Íslandi
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Þóra Kristín Gunnarsdóttir
Hverfulleikinn
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Marína Ósk Þórólfsdóttir
„Heima í stofu“ - Stofutónleikaröð á Eyrarbakka
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Bergþóra Linda Ægisdóttir
Nýtt verk fyrir Bergþóru Ægisdóttur og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Ingibjörg Elsa Turchi
Eonia-flutningur á Jazzhátíð
Úthlutuð upphæð: 400.000 kr.
Örlygur Steinar Arnalds
SVBKVLT kvöld í Reykjavík
Úthlutuð upphæð: 400.000 kr.
Bryndís Guðjónsdóttir
Í speglinum
Úthlutuð upphæð: 400.000 kr.
Sönghópurinn Kyrja
Medieval chant and polyphony. from Iceland and beyond
Úthlutuð upphæð: 350.000 kr.
SlamCrew ehf.
RUTHLESS ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Í IÐNÓ
Úthlutuð upphæð: 300.000 kr.
Benjamín Gísli Einarsson
Benjamín Gísli á tónleikaferðalagi um Ísland
Úthlutuð upphæð: 250.000 kr.
Elín Gunnlaugsdóttir
Ég sendi þér vals!
Úthlutuð upphæð: 225.000 kr.
Útflutningur - markaðsstyrkir
Iceland Sync Management ehf.
BRÍET herjar á alþjóðamarkað - Audience Development and Release Strategy with Blackstar Agency
Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
marvaða ehf.
Kynning á nýrri hljómplötu Gyðu Valtýsdóttur
Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
Tónskáldafélag Íslands
Makaðssetning Myrkra músíkdaga erlendis
Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Brynja Bjarnadóttir
Önnur breiðskífa Brynju - Markaðssetning erlendis
Úthlutuð upphæð: 800.000 kr.
Hekla Magnúsdóttir
Hekla Turnar
Úthlutuð upphæð: 650.000 kr.
Stefanía Pálsdóttir
Markaðsherferð virgin orchestra fyrir EP plötu í UK
Úthlutuð upphæð: 600.000 kr.
Þróun og innviðir - viðskiptastyrkir
Iceland Sync Management ehf.
Lagahöfundabúðirnar AIRSONGS
Úthlutuð upphæð: 2.500.000 kr.
Vökufélagið - Félag Þjóðlistafólks
VAKA þjóðlistahátíð
Úthlutuð upphæð: 2.500.000 kr.
Aulos. félagasamtök
WindWorks í Norðri 2025
Úthlutuð upphæð: 2.000.000 kr.
State of the Art slf.
State of the Art 2025
Úthlutuð upphæð: 1.650.000 kr.
Hrefna Helgadóttir
GLITSKÝ MANAGEMENT – Fasi 2
Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
Við Djúpið
Tónlistarhátíðin Við Djúpið
Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Kammermúsíkklúbburinn
Kammermúsíkklúbburinn 2025 - 2028 (þrjú starfsár)
Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
RVK Tjörn ehf.
Iðnó: Bæting innviða
Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Raflistafélag Íslands
Raflost 2025
Úthlutuð upphæð: 900.000 kr.
Félag íslenskra hljómlistarmanna
Jazz í Djúpinu
Úthlutuð upphæð: 670.000 kr.