PODIUM á Myrkum músíkdögum
Tónskáldum, flytjendum, hljóðlistarfólki og öðru tónlistarfólki í samtímatónlist gefst tækifæri til að kynna verkefni sín á Podium á Myrkum Músíkdögum fyrir listrænum stjórnendum erlendra hátíða í samtímatónlist og blaðamönnum sem eru á landinu vegna hátíðarinnar.
Podium fer fram á Myrkum músíkdögum laugardaginn 25. janúar kl. 10:00-12:00 í sal Tónlistarmiðstöðvar í Austurstræti 5.
Tónlistarmiðstöð og Myrkir músíkdagar standa fyrir Podium með stuðningi frá Íslandsstofu. Podium er árlegur kynningarviðburður Myrkra músíkdaga þar sem leitast er við að skapa vettvang sem eykur sýnileika og möguleika íslenskrar samtímatónlistarverkefna á erlendum vettvangi. Enn er verið að bóka erlenda gesti, en staðfestir eru fulltrúar frá Ultima Contemporary Music Festival, Klang Festival og Seismograf.
Öll sem starfa við samtímatónlist á Íslandi eru velkomin og þátttakan er gjaldfrjáls. Vakin er athygli á að takmarkaður fjöldi kemst að í Podium og nauðsynlegt er að sækja um þátttöku HÉR. Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember og verður öllum umsóknum svarað í síðasta lagi 2. desember.
Skipuleggjendur valdra verkefna fá 10 mínútur af dagskrá Podium til kynninga og til að svara spurningum gesta. Vinsamlegast takið fram í umsóknarforminu hvort þið viljið nýta myndvarpa, hljómflutningstæki eða fara á einhvern hátt út fyrir rammann með ykkar kynningu.