Nótnaveitan 101 - Kynning á skráningu, skilmálum og handritageymslu

🗓️📍30. september 2025 kl. 17:30-19:00 í Tónlistarmiðstöð, Austurstræti 5

Á viðburðinum verður nýlega uppfærð vefbúð nótnasafns Tónlistarmiðstöðvar kynnt, ásamt annarri þjónustu sem Tónlistarmiðstöð veitir íslenskum tónskáldum. Snert verður á flestu sem viðkemur tónskáldunum sem eiga verk í safninu, eins og höfundarréttargreiðslum, skylduskilum á nótum í samvinnu við Landsbókasafn og varanlega varðveislu nótna og handrita.

Finnur Karlsson, verkefnastjóri tónverkasafns Tónlistarmiðstöðvar, leiðir dagskrána, en með honum verður Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, fagstjóri skylduskila hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.

Dagskrá:

  • Ný nótnaveita kynnt
    • Helstu breytingar
    • Tónskáldaprófílar, leitarvél og sölusíður verka
  • Nótnasala og -leiga í gegnum Tónlistarmiðstöð
    • Verðskrá, verðformúlur og sveigjanleiki til að mæta öllum tegundum nóteraðrar tónlistar
    • Stafræn partaleiga í gegnum Newzik
  • Hækkanir á höfundarréttargreiðslum fyrir nótnasölu 2025
  • Skráningarskilmálar
  • Samstarfssamningur við Landsbókasafn – Háskólabókasafn
    • Skylduskil og ISMN númer
    • Varðveisla á handritum
  • Tekið á móti spurningum

Viðburðurinn er öllum opinn og þátttaka er ókeypis.

Dagsetningar
Dagsetning
30 September 2025
 –
Staðsetning
Austurstræti 5
Vefsíða
Aðrir viðburðir
Allir viðburðir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar