Í fylgd með fullorðnum: Umboðsmennska 101

13
.  
May
 
2025

📅 22. maí 2025

🕓 Kl. 16:00–18:00

📍 Tónlistarmiðstöð, Austurstræti 5

Tónlistarmiðstöð og MMF Iceland bjóða áhugasömum upp á fyrirlestra og pallborð um hvað það felur í sér að starfa við umboðsmennsku í tónlist á Íslandi.

Reynslumikið fólk úr íslenska tónlistargeiranum gefur áhugasömum innsýn í störf sín og verður umboðsmennska rædd í þaula. Tekist verður á við spurningar eins og:

  • Hvað gerir umboðsmaður?
  • Hver er munurinn á bókara og umboðsmanni?
  • Hvernig verður maður umboðsmaður? 
  • Hverjir eru lykiðaðilarnir í geiranum og hvenær vinna þeir saman eða í sitt hvoru lagi? 
  • Hver er munurinn á geiranum hér heima og erlendis?
  • Hvernig fær umboðsmaðurinn tekjur? 
  • Hvernig samninga er eðlilegt að gera við tónlistarfólk um umboðsmennsku?

Fyrirlesarar eru María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar og fyrrverandi umboðskona Ásgeirs Trausta og Soffía Kristín Jónsdóttir, umboðskona og meðeigandi tónlistarfyrirtækisins Iceland Sync. Að fyrirlestrum loknum fara fram pallborðsumræður þar sem Soffía og María sitja fyrir svörum ásamt Snorra Ástráðssyni, Margréti Ósk og Árna Þór Árnasyni.

Viðburðurinn er sérstaklega ætlaður þeim sem hafa áhuga á eða hyggja á störf í þessum geira og tónlistarfólki sem sinnir sínum eigin umboðsstörfum.

Í kjölfar viðburðarins býðurTónlistarmiðstöð upp á léttar veitingar, þar sem gestum gefst tækifæri til að njóta góðs félagsskapar og ræða málin frekar.

Skráning á viðburðinn fer fram hér.

Um þátttakendur

María Rut Reynisdóttir

María Rut Reynisdóttir hefur frá árinu 2008 helgað sig störfum í listum og menningu, sérstaklega tónlist, og hefur mikla reynslu sem menningarstjórnandi og sérfræðingur í menningarmálum sem fyrrum skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg, verkefnastjóri Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur, framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna, dagskrárstjóri Iceland Airwaves og umboðsmaður Ásgeirs Trausta um árabil. 

Snorri Ástráðsson

Snorri Ástráðsson hefur starfað í tónlistarbransanum frá því að hann var einungis 15 ára gamall, fyrst sem partur af svokölluðu artist liason teymi tónlistarhátíða á íslandi svo sem plötusnúður fyrir marga af helstu tónlistarmönnum landsins en í dag starfar Snorri sem tónleikahaldari fyrir alþjóðlega tónleikafyrirtækið All Things Live í Kaupmannahöfn. Samhliða því starfar hann sem umboðsmaður fyrir tónlistarmennina Daniil, Flona, Izleif, Young Nazareth og LOGI. 

Snorri er einnig einn stofnenda og eiganda tónleikafyrirtækisins Garcia Events. Snorri er útskrifaður með BA gráðu í Music Management frá RMC háskólanum í Kaupmannahöfn og hefur verið búsettur í Kaupmannahöfn síðastliðin 5 ár.

Soffía Kristín Jónsdóttir

Soffía Kristín Jónsdóttir hefur verið með puttana í öllu sem tengist tónlist frá barnsaldri. Soffía lærði viðskiptafræði við Verzlunarskóla Íslands og bætti síðan við sér B.S. gráðu í Music Business frá Full Sail University í Bandaríkjunum.

Árið 2014 stofnaði hún Iceland Sync Creative ásamt Steinunni Camillu, sem var fyrst og fremst umboðsskrifsstofa fyrir íslenskt tónlistarfólk en er í dag einnig bókunarskrifstofa, útgáfufyrirtæki, forleggjari, tónleikahaldari ofl.

Iceland Sync umboðsmennsku fyrir Bríeti, Unu Torfa og Jóhönnu Guðrúnu.

Árni Þór Árnason

Árni hefur verið viðloðinn hin ýmsu tónlistarverkefni í yfir 20 ár, bæði sem listamaður og umboðsmaður. Hann býr því yfir gífurlega fjölbreyttri reynslu sem snertir á ýmsum sviðum iðnaðarins. Undanfarin átta ár hefur Árni sinnt umboðsmennsku fyrir Ólaf Arnalds, en þess fyrir utan er hann meðstofnandi og stjórnarformaður OPIA Community og MMF Iceland.

Margrét Ósk

Margrét Ósk er umboðsmaður sem hefur aðallega unnið með hljómsveitinni Supersport! en tengsl hennar við tónlistina ná langt aftur til menntaskólaáranna þegar hún byrjaði að halda og skipulegga alls kyns viðburði. Hún er menntaður lögfræðingur og hefur síðastliðin ár einblínt á tónlistar- og tækniiðnaðinn, ráðningar og mannauðsmál en dagvinna hennar er hjá einu stærsta ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi, Icelandia.  

Hún hefur fylgt Supersport! í gegnum samningaferli við plötufyrirtæki, nokkrar útgáfur og á "showcase" hátíðir en fyrr á þessu árið fékk hljómsveitin boð á Eurosonic í Groningen. Lögfræðin hefur nýst vel í störfum hennar sem umboðsmaður, en henni finnst einstaklega gaman að grúska í samningum og eiga viðræður um þá.

MMF Iceland

MMF Iceland eru hagsmunasamtök umboðsmanna á Íslandi, sem stofnuð voru árið 2022. Markmið þeirra er að leiða saman fagaðila í íslenskum tónlistariðnaði. Þau eru hluti af hinu alþjóðlega Music Managers Forum (MMF), stærstu félagasamtök umboðsmanna í heimi, en þeirra vettvangur er að skapa tengsl, og miðla upplýsingum inn í þessa mikilvægu starfsgrein tónlistariðnaðarins. Í stjórn MMF á Íslandi eru sem dæmi umboðsmenn Ólafs Arnalds, Bríetar, Eydísar Evensen o.fl.

Hafir þú áhuga á að ganga til liðs við MMF á Íslandi mun stjórnin deila með þér upplýsingum um hvernig sækja má um, hvort sem þú ert sjóaður eða nýgræðingur í umboðsmennsku.

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar