Tónlistarsjóður veitir 77 milljónum til 74 verkefna í fyrri úthlutun ársins 2025 - Myndir

Fimmtudaginn 9. janúar var haldin móttaka í Tónlistarmiðstöð fyrir styrkhafa fyrri úthlutunar Tónlistarsjóðs 2025. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr öllum deildum Tónlistarsjóðs sem stofnaður var í fyrra.
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, bauð gesti og styrkhafa velkomna í hús. Í kjölfarið flutti tónlistarkonan Árný Margrét tvö lög fyrir viðstadda og svo ávarpaði Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, gesti og færði handhöfum hæstu styrkja blómvendi eftir að fulltrúar úthlutunarnefnda höfðu gert grein fyrir niðurstöðum.
„Aðdráttarafl tónlistarinnar skapar tekjur og verðmæti langt út fyrir það sem við leggjum til hennar. Þrátt fyrir ítrekaða útreikninga þurfa talsmenn skapandi greina sífellt að réttlæta stuðning ríkisins við listgreinar. Að margföldunaráhrifin fyrir hagkerfið réttlæti hann ekki og að tónlistarfólk sem nær ekki ásættanlegum vinsældum geti einfaldlega fundið sér eitthvað annað að gera. Þetta hugarfar lýsir mikilli skammsýni – en líklega aldrei eins mikið og nú. Á tímum þar sem gervigreindin getur pumpað út þúsundum laga með einum smelli hefur aldrei verið mikilvægara að styðja við raunverulegan sköpunarkraft, þessa frumþörf mannsins, sem sameinar fólk og dregur það heimshorna á milli. Við eigum að styðja við tónlist sem sprettur úr mennskunni og miðlar raunverulegum tilfinningum, sameinar okkur eða ögrar. Við eigum því ekki aðeins að styðja við skapandi greinar fyrir hagkerfið, heldur einnig fyrir mannlífið sjálft!“
– Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
Alls bárust sjóðnum 424 umsóknir en til úthlutunar voru rétt rúmar 77 milljónir.
Hæstu Tónlistarstyrki úr deild frumsköpunar og útgáfu hlutu Bríet, Celebs, Elín Hall, hist og, Jelena Ciric, Jófríður Ákadóttir, Kári Egilsson, Sara Mjöll Magnúsdóttir og Valdimar. Þau fengu öll styrk upp á 1,5 milljón hvert.

Hæstu Flytjendastyrki úr deild lifandi flutnings, upp á 2 m.kr. hvort, fengu Barokkbandið Brák og Kammeróperan. Að auki hlaut Sinfóníuhljómsveit unga fólksins 1,5 m.kr. Í styrk.
Engir nýir langtímasamningar voru veittir í þessari úthlutun en eftirfarandi verkefni eru með langtímasamninga í gildi 2025:
- Nordic Affect - 2,5 m.kr. (2025 -2026)
- Caput - 6 m.kr. (2024-2026)
- Kammersveit Reykjavíkur - 5 m.kr. (2024-2026)
- Cauda Collective 1 m.kr. (2024-2025)

Hæstu Viðskiptastyrki úr deild þróunar og innviða hlutu INNI, Jazzhátíð Reykjavíkur og OPIA Community uppá 3 m.kr hvert. Þá hlaut Kona forntónlistarhátíð 2,5 m.kr. í styrk.
Engir nýir langtímasamningar voru veittir í þessari úthlutun en eftirfarandi verkefni eru með langtímasamning í gildi 2025:
- Myrkir músíkdagar - 4 m.kr. (2025-2026)
- Óperudagar - 4 m.kr. (2024-2026)
- Sönghátíð í Hafnarborg - 2 m.kr. (2024-2026)
- Reykholtshátíð - 1 m.kr. (2024-2026)
- Bræðslan - 1,5 m.kr. (2024-2026)
- Sumartónleikar í Skálholti - 4 m.kr. (2024-2025)
- Iceland Airwaves - 6 m.kr. (2024-2026)
- Mengi - 3 m.kr. (2024-2025)

Hæstu Markaðsstyrki úr útflutningsdeild hlutu Ólöf Arnalds uppá 2 m.kr. og Árný Margrét uppá 1,5. m.kr.

Frekari upplýsingar um veitta styrki og skiptingu á milli deilda Tónlistarsjóðs má nálgast hér.
Myndir











