Tónlistarsjóður veitir 56 milljónum til 58 verkefna í síðari úthlutun ársins 2025 - Myndir

16
.  
June
 
2025

Fimmtudaginn 12. júní var haldin móttaka í Tónlistarmiðstöð fyrir styrkhafa seinni úthlutunar Tónlistarsjóðs 2025. Þar komu saman tónlistarfólk, fagaðilar, fulltrúar sjóðsins og fleiri gestir og fögnuðu úthlutuninni, þeirri þriðju frá stofnun sjóðsins í fyrra. ‍Alls bárust sjóðnum 386 umsóknir en til úthlutunar voru rétt rúmar 56 milljónir og var þeim veitt til 58 verkefna. 

‍María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, bauð gesti og styrkhafa velkomna og greindi frá sívaxandi ásókn í sjóðinn. Á sama tíma hefur áhersla verið lögð á að forðast lága styrki og veita heldur færri og hærri styrki. Þetta hefur skilað sér í því að einungis 15% umsókna í sjóðinn fá styrki. „Stefna þarf á að hækka það hlutfall í 30%.  Því þó talað sé um styrki úr Tónlistarsjóði væri réttari að tala um fjárfestingu í nýjum tækifærum, verkum og verkefnum á sviði tónlistar,“ sagði María Rut.

Hanna Mía Brekkan lék svo nokkur lög fyrir viðstadda áður en Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ávarpaði hópinn og ræddi mikilvægi þess að hlúa að íslensku tónlistarumhverfi: 

„Íslensk tónlist er ómetanlegur hluti af menningarlegri sjálfsmynd okkar. Hún eflir samfélagið, styrkir tungumálið og veitir gleði og dýpt í daglegt líf. 

Þrátt fyrir að við stöndum frammi fyrir aðhaldskröfum í opinberum útgjöldum er mikilvægt að tryggja öflugt umhverfi fyrir tónlistarfólk til að halda áfram að skapa og miðla. Sköpunarkrafturinn sem býr í íslenskri tónlist er verðmæti sem við verðum að hlúa að – líka á tímum áskorana. 

Tónlistarmiðstöð gegnir þar lykilhlutverki og vinnur afar öflugt starf; starf sem komið var á fót af miklum metnaði og þarf að fá að dafna. Þannig getur sá virðisaukandi ávinningur sem starfsemin skapar – ekki aðeins fyrir tónlistarfólkið sjálft, heldur fyrir okkur öll sem þjóð – haldið áfram að vaxa.“

Í kjölfar ávarps ráðherra greindu fulltrúar úthlutunarnefnda frá niðurstöðum þeirra og handhafar hæstu styrkja tóku við blómvöndum og hlýjum hamingjuóskum frá ráðherra.

Styrkhafar og myndir

Ólöf Arnalds (f.h. Skúla Sverrissonar) tekur við blómum frá Loga Einarssyni, menningar-, háskóla-, og nýsköpunarráðherra.

Hæstu Tónlistarstyrki úr deild frumsköpunar og útgáfu hljóta GRÓA, Arnór Dan, Ingibjörg Guðlaugsdóttir og Skúli Sverrisson, en styrkirnir sem þau fá eru allir á bilinu 1.5-1.75 m.kr. 

Ólöf Arnalds (f.h. Skúla Sverrissonar), hljómsveitin GRÓA, Ingibjörg Azima og Arnór Dan stilla sér upp með ráðherra.

Kammerkórinn Schola Cantorum og hljómsveitin Umbra hljóta hæstu verkefnastyrkina úr deild lifandi flutnings, eða 1.5 m.kr. hvor. Einnig er gerður langtímasamningur við Kammerkórinn Cantoque sem hljóðar uppá 3 m.kr. Auk Kammerkórsins Cantoque eru eftirfarandi verkefni með gildandi langtímasamninga hjá deild lifandi flutnings:

  • Nordic Affect - 2.5 m.kr. (2025 -2026)
  • Caput - 6 m.kr. (2024-2026)
  • Kammersveit Reykjavíkur - 5 m.kr. (2024-2026)
  • Cauda Collective - 1 m.kr. (2024-2025)

Benedikt Ingólfsson, Alexandra Kjeld og Arngerður María frá Umbru og Þórunn Vala Valdimarsdóttir

Hæstu Viðskiptastyrki úr deild þróunar og innviða hljóta Iceland Sync Creative og Vaka þjóðlistahátíð, en þau hljóta 2.5 m.kr hvor. Að auki hlýtur WindWorks í Norðri 2 m.kr. í styrk.  

Úthlutunarnefnd ákvað að veita ekki frekari langtímasamninga í þessari úthlutun en eftirfarandi verkefni eru með langtímasamning í gildi 2025: 

  • Myrkir músíkdagar - 4 m.kr. (2025-2026)
  • Óperudagar - 4 m.kr. (2024-2026)
  • Sönghátíð í Hafnarborg - 2 m.kr. (2024-2026)
  • Reykholtshátíð - 1 m.kr. (2024-2026)
  • Bræðslan - 1,5 m.kr. (2024-2026)
  • Sumartónleikar í Skálholti - 4 m.kr. (2024-2025)
  • Iceland Airwaves - 6 m.kr. (2024-2026)
  • Mengi - 3 m.kr. (2024-2025)

Pamela De Sensi, Chris Foster og Steinunn Camilla Sigurðardóttir taka við blómum frá Loga Einarssyni.

Bríet og Gyða Valtýsdóttir eru handhafar hæstu markaðsstyrkjanna úr útflutningsdeild, en þær hlutu 1.5 m.kr. hvor.

Ásrún Laia Awad (f.h. Bríetar) og Gyða Valtýsdóttir taka við blómum frá Loga Einarssyni, menningar-, háskóla-, og nýsköpunarráðherra.



Frekari upplýsingar um veitta styrki og skiptingu á milli deilda Tónlistarsjóðs má nálgast hér.


Myndir

María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, og Logi Einarsson, menningar- háskóla- og nýsköunarráðherra ávarpa samkomuna.
Hanna Mía Brekkan leikur nokkur lög fyrir gesti
Tómas R. Einarsson, Guðrún Ýr Eyfjörð og Sverrir Páll Sverrisson hlusta einbeitt á Hönnu Míu
Tónlistarkonan Brynja Bjarnadóttir blikkar ljósmynara
Sindri Ástmarsson, formaður úthlutunarnefndar í deild frumsköpunar og útgáfu, Sævar Jóhannsson og Arnór Dan djúpt sokknir í spjall.
GRÓA á gleðistundu
Ólöf Arnalds, Atli Bollason og Gyða Valtýs ræða málin
Steinunn Camilla og Hrefna Helgadóttir stilla sér upp fyrir hóp ljósmyndara
Sigtryggur Baldursson, sérfræðingur hjá Tónlistarmiðstöð, sér um veitingarnar
Kim Wagenaar og Brynja Baldursdóttir skála í tilefni dagsins.

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar