Tónlistarsjóður – Næsti umsóknarfrestur fyrir ferðastyrki rennur út 1. desember

21
.  
November
 
2024

Ferðastyrkir eru veittir úr deild útflutnings og eru ætlaðir tónlistarfólki og fagaðilum sem vilja sækja sér tækifæri erlendis en nú geta fagaðilar í tónlistariðnaðinum einnig sótt um 50.000 kr. styrk vegna starfstengdra ferða milli landshluta, t.d. til að sækja alþjóðlegar ráðstefnur, fræðslu og tengslamyndunarviðburði sem auka útflutningstækifæri fyrir verkefni viðkomandi. Þessi viðbót við ferðastyrkinn er tilraunaverkefni til loka árs 2024.

Umsóknarfrestur er til miðnættis laugardaginn 30. nóvember og hægt er að sækja um hér

Um ferðastyrki Tónlistarsjóðs:

Upphæðir sem hægt er að sækja um:

  • 50 þúsund kr. á einstakling innanlands
  • 75 þúsund kr. á einstakling innan Evrópu
  • 100 þúsund kr. á einstakling utan Evrópu

Styrkir eru ekki veittir aftur í tímann og við mat á umsóknum um ferðastyrk litið til eftirfarandi atriða:

  • Er tónlistarmanneskjan/hópurinn tilbúinn fyrir útflutning (e. ‘export ready’)?
  • Mikilvægi tónleikanna/viðburðarins fyrir útflutning tónlistarinnar.
  • Fjölda tónleika á tónleikaferðalagi.
  • Er um frumflutning að ræða (fyrir tónskáld)?
  • Er fjárhagsáætlun raunhæf og sýnir fram á sannarlega fjárþörf. Hér má sjá sniðmát fyrir fjárhagsáætlun.

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar