Elín Hall tekur yfir Love Letter lagalistann

20
.  
June
 
2025

Ástsæla söngvaskáldið Elín Hall er við stjórnvölinn á Love Letter lagalistanum okkar þessa vikuna, en Elín var einmitt viðmælandinn í síðasta þætti Northern Rising hlaðvarpsseríunnar sem Tónlistarmiðstöð framleiddi í samstarfi við Reykjavík Grapevine og bandaríska fjölmiðlamógúlinn Tim Pogo. 

Elín er stödd í London þessa dagana til að fylgja eftir nýjustu útgáfunni sinni Heaven to a Heathen, en lagið var jafnframt tekið upp í borginni. Þessa stundina er á leiðinni til borgarinnar Milton Keynes til að koma fram á tónlistarhátíðinni Bludfest, en fann sér tíma til að senda okkur þessa kveðju sem angar af ljúfsárum trega og angurværri heimþrá. 

Lagavalið er fullt af ást og söknuði og er því kjörið fyrir sólstöðurnar sem er í vændum um helgina. Það er enn vor í lofti og við hlökkum öll til ævintýra sumarsins, en veruleikinn er sá að brátt tekur daginn að stytta og við fáum aldrei almennilega að sleppa takinu af skammdeginu. 

Eigiði yndislega helgi! 

Love Letter lagalistinn

Norther Rising

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar