Árný Margrét, superserious og DJ Hermigervill spila á Iceland Airwaves off venue í Nashville

11
.  
June
 
2025

Árný Margrét, Superserious og DJ Hermigervill halda á vit ævintýranna (Nashville) þar sem Íslandsstofa stendur fyrir Taste of Iceland – markaðsátaki sem miðar að því að kynna Ísland út fyrir landsteinana.
Á dagskránni má meðal annars finna Iceland Airwaves off-venue tónleika þar sem íslenska tónlistarfólkið okkar stígur á stokk og flytur tónlistina sína fyrir viðstadda.

Tónleikarnir verða haldnir á Row One Stage, Cannery Hall í Nashville klukkan 19:00, 26. júní.

Tónleikarnir eru gjaldfrjálsir en það er 21 árs aldurstakmark. 

Dagskrá tónleikanna:
19:00: Hurðir opnast - DJ Hermigervill
20:00: Árný Margrét
21:00: superserious
22:00: DJ Hermigervill

Tryggðu þér miða hér >>

Uppgötvið tónlistarfólkið á lagalistanum okkar - Iceland Music Indie:

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar