Sátan um helgina - Glæsileg „off-venue" dagskrá kynnt

3
.  
June
 
2025

Þungarokksónlistarhátíðin Sátan fer fram núna um helgina (5-7. júní) á Stykkishólmi. Þar koma fram 24 hljómsveitir og er fjölbreytnin gríðarleg. Má þar til að mynda nefna Íslenskar sveitir á borð við dauðarokksbrautryðjendurna Sororicide, frumþungarokkarana Vintage Caravan og víkingametalbandið Skálmöld ásamt erlendum goðsögnum eins og Carcass og Discharge. 

Samhliða tónleikadagskránni býður hátíðin upp á gríðarlega metnaðarfullt “off-venue” prógram sem samanstendur af vinnustofum, pallborðum, hlaðvörpum og allskonar viðburðum. Boðið verður upp á samtal á milli Bibba í Skálmöld og fv. forseta Íslands Guðna Th. undir yfirskriftinni “Til varnar Valhallar”, bassa- og gítarvinnustofur í boði Madda (Forgarður Helvítis, Beneath ofl.) og Þráins Árna (Bastarður, Skálmöld, Sororicide), rúnafræðslu frá sagnfræðingnum Teresu Njarðvík, tónleika með alþýðupönkarunum í Hemúlnum og opna útsendingu þungarokksþáttsins Stokkið í Eldinn þar sem Vintage Caravan koma í spjall. 

Hliðardagskrá hátíðarinnar er opin öllum og við hlökkum til að sjá sem flesta á Stykkishólmi! 

Kynnið ykkur dagskrána nánar hér: 

Allar nánari upplýsingar og hátíðarmiða, má finna á vefsíðu Sátunnar

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar