Opið fyrir umsóknir - NOMEX tengslamyndunarferð á Summer Breeze í Þýskalandi
.jpg)
Í samstarfi við NOMEX bjóðum við útgefendum, umboðsfólki og öðrum sem starfa í þungarokksgeiranum að taka þátt í tenslamyndunarferð á Summer Breeze Open Air Festival í Dinkelsbühl, Þýskalandi.
Hátíðin, sem fer fram dagana 13.-16. ágúst, hefur verið haldið árlega síðan 1997. Hún tekur á móti um 40.000 gestum á hverju ári og er meðal stærstu og virtustu þungarokkshátíða í Evrópu.
Í ferðinni verður boðið upp á allt að 9 bransa- og Q&A viðburði með lykilaðilum úr evrópsku þungarokkssenunni. Meðal fyrri gesta má nefna fulltrúa frá Napalm Records, Nuclear Blast, Century Media, Metal Blade og fleiri. Einnig er innifalinn svokallaður Captains Dinner ásamt auðvitað aðgangur að hátíðinni.
Tónlistarmiðstöð greiðir fyrir þátttöku í verkefninu, hátíðarmiða, gistingu og ferðalög til og frá flugvelli þegar komið er út, en þátttakendur þurfa sjálfir að sjá um ferðakostnað.
Við hvetjum þau sem hljóta samþykki til að sækja um ferðastyrk úr Tónlistarsjóði en næsti umsóknarfrestur er 1. ágúst.
Sækið um hér - umsóknarfrestur er 16. júní