Magnús Jóhann og Óskar Guðjóns taka yfir Love Letter lagalistann
.jpg)
Virtúósarnir Óskar Guðjóns og Magnús Jóhann leiddu nýverið stærstu íslensku sendinefnd sem farið hefur á tónlistarhátíðina Jazzahead í Bremen. Þar voru samankomin fulltrúar tólf íslenskra verkaefna: Freysteins, Marey, Mikael Mána, Sunnu Gunnlaugs, Inga Bjarna, Önna Sóleyjar , ADHD, Hist og, MOVE, Ómars Guðjónssonar, Silvu og Steina, og auðvitað Fermented Friendship – samstarfsverkefnsi Óskars og Magnúsar, en þeir komu einmitt fram á tónleikum í Kulturzentrum Lagerhaus sem við hjá Tónlistarmiðstöð stóðum fyrir í samstarfi við kollega frá Svíþjóð, Færeyjum og Finnlandi.
Í dag taka þeir yfir Love Letter lagalistann okkar og er varla hægt að hugsa sér betri ferðafélaga á degi eins og þessum, þegar sólin, hinn sjaldséð vinur, skín í allri sinni dýrð og við fyrirgefum öll hennar fyrri svik, en vitum samt innst inni að hún er skammgóður vermir.
Lagalistinn er stútfullur af séríslensku skammdegis-kalípsói, ástsælum útilegulögum og bjartsýnum sumarsmellur ásamt nægilega óhugnanlegum útúrdúrum sem halda okkur kirfilega jarðtengdum og minna okkur á hvað þetta er nú allt hverfult.
Eigiði yndislega helgi 🫠🫠🫠