Auglýst eftir tilnefningum fyrir, Nordic Music Biz Top 20 under 30, 2025
.png)
NOMEX leitar að ungu fagfólki í tónlist sem er í fararbroddi innan tónlistariðnaðarins á Norðurlöndunum.
Top 20 under 30 Nordic Music Biz-verðlaunin eru ætluð tónlistarbransafólki, allt frá umboðsmönnum og tónlistarforleggjurum til tónleikahaldara. Þessi verðlaun eru samstarfsverkefni fimm norrænna útflutningsskrifstofa í tónlist: Iceland Music, Export Music Sweden, Music Export Denmark, Music Finland og Music Norway.
Þekkir þú einhvern yngri en 30 ára sem hefur skarað fram úr árið 2024 eða 2025? Ef svo er, getur þú sent inn þína tilnefningu með því að fylla út formið hér að neðan. Innsending tilnefninga má vera nafnlaus. Frestur til að tilnefna rennur út 30. apríl.
Senda inn tilnefningu>>
Þau sem tilnefnd eru verða að starfa í fyrirtæki eða stofnun/samtökum á sviði tónlistar eða afþreyingar á Norðurlöndunum. Einungis má tilnefna þau sem eru fædd árið 1995 eða síðar.
Dómnefnd sem samanstendur af 15 áhrifaríkum aðilum í tónlistariðnaði á öllum Norðurlöndunum fer yfir innsendar tilnefningar og velur þau 20 sem standa upp úr. Við val á tilnefningum mun dómnefndin skoða ýmsa þætti, til að mynda starfsferil og þróun í starfi, velgengni fyrirtækis, viðurkenningar og umsagnir samstarfsfólks, áhrifin á norrænan tónlistariðnað árin 2024 - 2025, listræna þróun, nýsköpun, tekjur af tónleikaferðum, miðasölu og ásýnd/viðveru á samfélagsmiðlum.
Top 20 Under 30 leggur áherslu á kynjajafnvægi og fjölbreytileika við val á tilnefningum.
Sigurvegarar fyrri ára:
- 2024: Gabríel Ólafsson, Klaudía Gawryluk
- 2023: Bjarni Daníel Þorvaldsson, Júnía Lín Jónsdóttir, Sólveig Matthildur
- 2022: Björk Hrafnsdóttir, Árni Hrafn Kristmundsson
- 2021: Ægir Sindri Bjarnason, Bergþór Másson
- 2020: Soffía Jónsdóttir
- 2019: Unnsteinn Manuel Stefánsson, Sigríður Ólafsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson
- 2018: Sindri Ástmarsson