15 verkefni fá ferðastyrki úr Tónlistarsjóði að heildarupphæð 3,9 m.kr.

19
.  
May
 
2025

Ferðastyrkir eru styrkir til tónlistarfólks og fagaðila sem vilja sækja sér tækifæri á stærri mörkuðum, t.d. með tónleikaferðalögum, þátttöku í sendinefndum, sölusýningum og fagtónlistarhátíðum (e. showcase). Einnig eru veittir styrkir til tónskálda vegna frumflutnings á tónverkum sem og Fagaðila vegna starfstengdra ferða milli landshluta, t.d. til að sækja ráðstefnur og tengslamyndunarviðburði.

Styrkirnir eru veittir á tveggja mánaða fresti og var síðasti umsóknarfrestur þann 31. mars síðastliðinn. Í heildina sóttu 52 verkefni um alls 13.150.000 kr. og ákvað úthlutunarnefnd að veita 3.900.000 til 15 verkefna. 

Næsti umsóknarfrestur fyrir ferðastyrki er 31. maí.

Verkefni sem hlutu ferðastyrk í apríl úthlutun: 

Volcanova - Tónlistarhátíðin Desertfest og tónleikaferðalag í Bretlandi - 225.000 kr.

Devine Defilment - Tónleikaferðalag um Evrópu - 450.000 kr.

Svanur Davíð Vilbergsson - Gítarhátíð á Ítalíu - 75.000 kr.

Daniil - Spot Tónlistarhátíðin - 150.000 kr.

Óskar Guðjónsson og Magnús Jóhann - Þátttaka í Jazzahead - 225.000 kr.

Hist og - Tónlistarhátíðir í Kanada - 300.000 kr.

Valgerður Halldórsdóttir - Þátttaka í Classical:Next - 75.000 kr.

ADHD - Tónleikaferðalag um Evrópu - 375.000

Pamela De Sensi Kristbjargardóttir - Alþjóðleg pikkólóhátíð í Þýskalandi - 150.000 kr.

ex.girls - Spot Tónlistarhátíðin - 300.000 kr.

viibra - Þátttaka í Classical:Next - 525.000 kr.

Sunna Gunnlaugsdóttir - Tónleikaferðalag um Evrópu - 225.000 kr.

Guðmundur Steinn Gunnarsson - Frumflutningur á tónverki í London - 75.000 kr.

Inspector Spacetime - Spot Tónlistarhátíðin - 375.000 kr.

GRÓA - Tónleikaferðalag um Evrópu - 375.000 kr.

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar